aðgerðir stjórnvalda og samfélagsleg ábyrgð varðandi ástandið í Grindavík.
Herra forseti. Það er aðdáunarvert hvernig Grindvíkingar hafa tekist á við ástandið, í óvissu sem er nær óbærileg fyrir fólk sem á allt sitt undir óútreiknanlegum náttúruöflum. Það var fallegt að sjá Grindvíkinga koma saman í Smáranum í Kópavogi til að fylgjast með liðinu sínu spila körfuboltaleik. Ég hef hvatt stjórnvöld til þverpólitísks samtals um aðgerðir, hvort sem þær eru efnahagslegar eða félagslegar, varði vinnumarkaðinn, fyrirtæki eða heimili Grindvíkinga. Verðmætin eru ekki aðeins í hlutum, fasteignum og fyrirtækjum heldur ekki síður í fólkinu sjálfu, listum og menningu og andlegri og líkamlegri heilsu. Það er mjög mikilvægt fyrir Grindvíkinga að þau fái eins skýr skilaboð frá stjórnvöldum og mögulegt er.
Grindvíkingar eru ekki að fara heim á næstunni og öll þurfa þau öruggt húsnæði næstu mánuðina. En þau eru einnig mörg að greiða af lánum á húsum sínum í Grindavík og ef ekkert verður að gert þurfa þau að bera kostnað af tveimur heimilum næstu mánuðina. Við sem samfélag eigum að sjá til þess að slíkar fjárhagslegar byrðar þurfi fólk ekki að bera eftir náttúruhamfarir. Ef ég skildi hæstv. ráðherra rétt fyrr í þessum fyrirspurnatíma er hún sammála því að bankarnir eða lánastofnanir eigi að bera kostnaðinn af því að fella niður vexti og verðbætur af lánum Grindvíkinga á meðan þau eru fryst. En til hvaða aðgerða er hægt að grípa? Hvað getur hæstv. ráðherra eða hæstv. ríkisstjórn gert annað í því en að biðja bankana og lífeyrissjóði um að sýna samfélagslega ábyrgð? Til hvaða hressilegu aðgerða er hæstv. ráðherra tilbúinn til að grípa?