aðgerðir stjórnvalda og samfélagsleg ábyrgð varðandi ástandið í Grindavík.
Virðulegur forseti. Ég fagna því sannarlega að allur þingheimur er sameinaður í því að fjármálastofnanir eigi að sýna fulla samfélagslega ábyrgð og við erum sammála um það að vextir og verðbætur falla þar undir. Hv. þingmaður spurði mig út í hvaða aðgerðir er hægt að grípa til og hvað ríkisstjórnin er að gera þessa dagana. Eins og ég upplýsti hér áðan þá er það svo að fjármála- og efnahagsráðherra hefur verið að funda með fjármálastofnunum um helgina og ég upplýsti líka að samkvæmt mínum heimildum séu allar líkur á því að við fáum niðurstöður af þessu samtali sem er búið að vera að eiga sér stað um helgina og í samtölum mínum við forstjóra eða bankastjóra fæ ég líka þær upplýsingar. Ég held að við eigum að gefa þessu smátíma en ekki of mikinn tíma og við leggjum auðvitað öll mjög mikla áherslu á það að Grindvíkingar fái mjög skýr skilaboð sem fyrst.