aðgerðir stjórnvalda og samfélagsleg ábyrgð varðandi ástandið í Grindavík.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og nefna það að já, þessi greining hefur átt sér stað og það er alveg ljóst hvar lánin liggja og líklega þá kostnaðurinn fyrir viðkomandi fjármálastofnun. Hv. þingmaður spurði hvort ráðherrann myndi beita sér fyrir því að sá banki sem er í ríkiseigu myndi leiða þetta og hafa áhrif á það og já, ég er að beita mér og mun halda áfram að beita mér. Eins og ég sagði hér áðan er gríðarlega mikilvægt að það sé þrennt tryggt núna og það er afkoma, það er húsnæði, skjól og viðbótarstuðningur við Grindvíkinga á þessum tíma. Ég ætla að segja það að ég bara fagna þessum fyrirspurnum sem koma hér og að þær snúist allar um það að veita Grindvíkingum skjól og að allur þingheimur sé sameinaður í því.