154. löggjafarþing — 33. fundur,  20. nóv. 2023.

aðgerðir stjórnvalda vegna andlegra áfalla út af ástandinu í Grindavík.

[15:38]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans svar. Já, mér hefur fundist skorta plan hvað þennan þátt varðar og ég sé ekki að það sé tilbúið einhvers staðar. Það er mikið áfall að missa heimili sitt, mjög mikið áfall að missa heimili sitt. Ég er alveg viss um að það er nánast óbærilegt að tapa heimilinu sínu, svo að ég tali nú ekki um börn og unglinga sem eru að hverfa frá þeim stað sem þau hafa verið að alast upp á, tapa vinum sínum jafnvel, fara ekki í skólann sinn, fara ekki í leikskólann sinn, fara ekki í íþróttafélagið sitt. Utan um þennan hóp verðum við að halda með öllum þeim ráðum sem fyrirfinnast og ég velti fyrir mér: Er ráðgert að setja einhverja fjármuni inn í væntanleg fjárlög til að styðja við þá skóla og leikskóla sem eru að taka við þessum hópum til að hjálpa þeim að gera lífið bærilegra í framhaldinu?