sérstök móttaka fyrir konur innan heilsugæslunnar.
Virðulegi forseti. Á síðasta kjörtímabili setti þáverandi hæstv. heilbrigðisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, af stað tilraunaverkefni um sérstaka móttöku fyrir konur innan heilsugæslunnar. Þetta var gert eftir samtal um að þörfum kvenna fyrir heilbrigðisþjónustu þegar um ræðir sértæk heilsufarsvandamál kvenna væri ekki mætt sem skyldi. Dæmi um þetta eru breytingaskeið kvenna, upplýsingar um getnaðarvarnir, ráðgjöf um ofbeldi og afleiðingar þess og ýmsir sjúkdómar sem herja sérstaklega á konur, svo eitthvað sé nefnt.
Í skriflegu svari hæstv. ráðherra á 152. löggjafarþingi kom fram að leit að hentugu húsnæði væri hafin þótt móttakan hefði þegar tekið til starfa í bráðabirgðahúsnæði í maí 2022. Ég vil því spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra: Hefur það húsnæði fundist? Hvernig hefur móttakan reynst og hefur frekari lærdómur verið dreginn af tilraunaverkefninu? Hvenær sér hæstv. ráðherra fyrir sér að hægt verði að leggja mat á framtíðarþróun þjónustunnar?