154. löggjafarþing — 33. fundur,  20. nóv. 2023.

Afleiðingar hárra vaxta fyrir heimilin í landinu.

[15:58]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf):

Forseti. Í efnahagsstjórn er hægt að grípa til aðgerða í peningamálum þar sem ókjörnir embættismenn í Seðlabanka fylgja verðbólgumarkmiði og nota til þess breitt tól sem eru stýrivextir. Þessir embættismenn hafa gífurleg áhrif á jöfnuð því vaxtagreiðslur eru ekki ólíkar skattgreiðslum. Síðan erum við með ríkisfjármálastefnu með fjölbreytt tæki sem hægt er að sérsníða að aðstæðum fólks og eftir efnahagsástandinu. Beiting ríkisfjármálanna getur þannig dregið úr ójöfnuði sem fylgir vaxtaákvörðunum. Á Íslandi undir stjórn Sjálfstæðisflokksins sem hefur átt efnahagsmálapólitíkina undanfarinn áratug hefur því lengi verið haldið fram að það sé vitleysa að beita skattkerfinu eftir aðstæðum til að taka á þenslu eða til að taka tillit til aðstæðna fólks. Því er jafnan haldið fram að ófyrirsjáanleiki í sköttum valdi fyrirtækjum og heimilum skaða, að ekki sé hægt að bjóða upp á slíkar sveiflur. Hræðsla við að beita slíkum tækjum og tólum til að koma jafnvægi á hagkerfið og tryggja að unnið sé á móti þenslu á réttum stöðum hefur orðið til þess að Seðlabankinn þarf að taka dramatískari ákvarðanir en ella í vaxtamálum. Ófyrirsjáanleikinn birtist vaxtamegin hjá heimilum og fyrirtækjum. Í heimilisbókhaldi fólks eða fyrirtækja skiptir engu máli hvort fjármagnið sem rennur út er í formi vaxtagreiðslna eða skatta, hæstv. forseti. Það eru þær tekjur sem eftir standa sem ákvarða kaupmátt og greiðslugetu. Vextir væru lægri ef hér væri virkari ríkisfjármálastefna sem beindist að þenslunni þar sem hún er, með stöðugleika og sanngirni sem útgangspunkt. Virk ríkisfjármálastefna sem beitir tekjuöflun jafnt sem útgjaldahlið eftir því sem við á tryggir að aðhaldið beinist að þeim sem hafa borð fyrir báru á verðbólgutímum. Í staðinn fær fólkið í landinu ígildi skattahækkana í formi flatra stýrivaxta á alla sem hér skulda og þar með hlutfallslega þyngstu skattana á ungt og tekjulágt fólk sem getur ekki reitt sig á eignir og sparnað foreldra sinna. Hér inni verðum við að einbeita okkur að ákvörðunum stjórnmálamanna, ekki ókjörinna embættismanna. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)