tímabundinn stuðningur til greiðslu launa vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegur forseti. Um leið og ég fagna því að þetta frumvarp sé komið fram og að við munum fjalla um það í velferðarnefnd þá langar mig að spyrja hæstv. ráðherra því nú vitum við að það eiga eftir að koma upp ýmis álitamál í sambandi við þetta og það eru ýmsir einstaklingar sem eiga eftir að þurfa að spyrja spurninga: Stendur til að vera með sérsíðu eða sérnetfang eða einhvern aðila sem er hægt að leita beint til til að fá upplýsingar og svör? Ég spyr líka vegna þess að nú skilst mér að það sé búið að opna aðstöðu í Tollhúsinu fyrir Grindvíkinga og ég held að þetta gæti ekki verið á verri stað fyrir aldrað fólk, fatlað fólk og öryrkja, að þurfa að fara niður í bæ að reyna að fá bílastæði, og gæti hindrað fólk í að reyna að fá upplýsingar. Stendur til að koma upp upplýsingamiðstöð einhvers staðar sem auðvelt aðgengi er að, bæði fyrir fatlaða og aðra?
Síðan er annað sem ég rak augun í og það eru kæruleiðir í þessu, hvort það standi ekki til að reyna að einfalda það. Það segir að ef fólk fær neitun um að fá laun eða er í vandræðum þá eigi að kæra til úrskurðarnefndar velferðarmála. Það er ekki einfalt og það tekur langan tíma. Ég spyr því: Ef það er eitthvert einfalt úrlausnarefni sem þarna er um að ræða, gæti ráðherra þá ekki verið með þannig aðstöðu að það væri hægt að leysa úr þessu án þess að þurfa að fara með það í þennan með kostnaðarsama farveg? Það er töluvert mál nefnilega að kæra til úrskurðarnefndar velferðarmála.