tímabundinn stuðningur til greiðslu launa vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin og er innilega sammála honum í því að það væri mjög einfalt t.d. að auglýsa vel hvert fólk á að fara, hafa símanúmer og netfang, og bregðast fljótt og vel við öllum þeim fyrirspurnum sem ég efast ekki um að komi inn. Svo geta auðvitað þeir sem hafa kynnt sér málið sent inn erindi um það til velferðarnefndar, ef þeir eru snöggir til, og það yrði þá tekið fyrir þar. Ég held miðað við allt að þetta ætti að ganga upp og ég vona heitt og innilega að þetta verði auglýst þannig að það verði mjög auðvelt fyrir fólk að finna bæði netfang, símanúmer og þá þessa heimasíðu þar sem það getur fengið einhverjar upplýsingar.