154. löggjafarþing — 33. fundur,  20. nóv. 2023.

tímabundinn stuðningur til greiðslu launa vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

508. mál
[16:47]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Mig langar að spyrja út í tímamörkin á þessu frumvarpi svona í fyrsta kasti. Ég velti fyrir mér hvers vegna sú leið er farin að hafa tímamörkin á þessu frumvarpi svona stutt. Þetta eru þrír mánuðir og við erum að tala um óvissutíma og hversu erfið óvissan er fyrir fólk frá Grindavík og hérna erum við að leggja til mjög skamma lausn þótt við vitum að ástandið geti varað töluvert lengur. Ég vil því byrja á að spyrja ráðherra hvort það kæmi ekki til greina að hafa lengri tíma og geta svo bara eftir atvikum hætt stuðningnum, frekar en að við þurfum svo að fara aftur í þessa æfingu í raun strax eftir áramót til að framlengja. Ég vil spyrja hvers vegna þessi stutti tímarammi er valinn.

Síðan langar mig að fara aðeins út í samspil þessa stuðnings og svo atvinnuleysistrygginga. Ég velti fyrir mér hvernig ráðherra lítur á stöðu tveggja einstaklinga frá Grindavík þar sem öðrum er sagt upp og hinn heldur starfi sínu í gegnum þetta úrræði, hvort það komi til álita að skoða stöðu þeirra sem er sagt upp, vegna þess að við vitum að tekjutengdar atvinnuleysisbætur ná ekki upp í t.d. þetta hámark sem er á þessu frumvarpi. Hefur ráðherra eitthvað íhugað atvinnuleysisbæturnar í þessu samhengi og hvernig fólk væri verra sett eftir því hvort því er sagt upp eða ekki? Það er þá sérstaklega með tilliti til þess að með því að krefjast endurgreiðslu ef fyrirtækin greiða sér út arð á næsta ári myndast kannski ákveðinn hvati til að segja frekar upp starfsfólki, til að þurfa ekki að endurgreiða síðar eða mega ekki greiða út arð. Ég skil alveg hugsunina á bak við það en við þurfum þá að hugsa um í hvaða stöðu þetta setur fólk.