154. löggjafarþing — 33. fundur,  20. nóv. 2023.

tímabundinn stuðningur til greiðslu launa vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

508. mál
[16:49]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Fyrst varðandi tímamörkin og þá hugsum hvort þau séu stutt eða löng. Ég tek alveg undir með þingmanni að þrír mánuðir eru ekki mjög langur tími en við töldum þó skynsamlegra að hafa þetta frekar styttra en lengra, þó svo að þrír mánuðir sé talsvert langt, það eru tveir mánuðir inn í næsta ár, vegna þess að óvissan er mjög mikil, þ.e. óvissan um hvað muni gerast. Þess vegna er gott að geta aðlagað þetta úrræði ef á þarf að halda eftir því sem málum vindur fram. Ég veit að þingheimur mun taka mjög vel í það ef það kemur til þess að þurfa annaðhvort að gera einhverjar breytingar, sníða af einhverja agnúa eða hreinlega framlengja þetta. Þá held ég að muni ekki standa á neinum hérna inni þannig að ég hef í sjálfu sér ekki áhyggjur af því.

Varðandi samspil við atvinnuleysistryggingarnar ætla ég að byrja á því að taka það skýrt fram að þetta er sértæk aðgerð. Hún tengist í rauninni ekki atvinnuleysistryggingakerfinu beint. Hins vegar, líkt og fram kom í máli hv. þingmanns, ef einstaklingi er sagt upp, ef fyrirtæki t.d. fer í þrot eða ákveður að hætta starfsemi, þá náttúrlega kemur inn uppsagnarfrestur sem gæti verið einn til þrír mánuðir og á þeim tíma grípur þetta úrræði fólk. En eftir að uppsagnarfrestinum lýkur myndi atvinnuleysistryggingakerfið grípa það og þá til að byrja með þriggja mánaða tekjutengdar bætur, sem eru 522.000 kr. á mánuði. — Mér sýnist ég þurfa að koma inn á arðinn í síðara svari til hv. þingmanns.