tímabundinn stuðningur til greiðslu launa vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegi forseti. Ég er kannski einna helst að hugsa um þessa fresti með hliðsjón af fyrirsjáanleika. Eins og þetta horfir við mér núna virðist ráðherra vera að boða það að fólk fái þennan stuðning í þrjá mánuði og svo veit fólk í raun ekkert hvað tekur við. Vissulega getur hæstv. ráðherra búist við velvilja þingmanna hér um að afgreiða eitthvað en það þýðir ekki að Grindvíkingar sé með nokkuð í höndunum um hvað taki við í mars, hvort þetta hætti bara eða hvað sem það er. Ég átta mig alveg á því sem hæstv. ráðherra segir um að óvissan sé mikil en mögulega væri þessu betur fyrir komið þannig að gildistíminn væri aðeins lengri en þá með einhvers konar ákvæði um að lögin falli úr gildi þegar þeirra er ekki lengur þörf. Það er auðveldara, held ég, að ganga í að græja svoleiðis en að fara í framlengingu eða eitthvað annað ef við erum að horfa til þess að hafa fyrirsjáanleikann á hreinu. Þá er ég sérstaklega að hugsa til þess að fólk viti bara að næsta hálfa árið eða eitthvað slíkt sé afkoma þess örugg, (Forseti hringir.) burt séð frá því hvort það væri vegna þess að hlutirnir fara aftur í eðlilegt horf eða vegna þess að það er búið að tryggja hana. (Forseti hringir.) Ég vona að ég hafi gert mig skiljanlega.