154. löggjafarþing — 33. fundur,  20. nóv. 2023.

tímabundinn stuðningur til greiðslu launa vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

508. mál
[16:53]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Já, ég skil hv. þingmann og hvert hún er að fara. Auðvitað er þetta atriði sem skiptir miklu máli, þ.e. tímalengdin, en þó ekki meira máli en svo að það er auðvelt að breyta þessu. Ég held að það sé lykilatriði að við munum breyta þessu ef á þarf að halda og ég held að það sé mikilvægt að það komi fram.

Aðeins aftur þar sem frá var horfið áðan, um það ef einhverjum er sagt upp. Við erum auðvitað að vonast til þess að með þessu frumvarpi komum við í veg fyrir uppsagnir. Við getum ekki útilokað það en það ætti að skipta máli að ríkið komi inn og aðstoði í rauninni atvinnurekendur við að greiða hluta af launum.

Síðan vil ég segja varðandi arðinn að ég veit hvað hv. þingmaður er að fara með því en vil nefna hér að frumvarpið er samið í samráði við aðila vinnumarkaðarins og þeir (Forseti hringir.) voru sáttir við þessa útfærslu á málinu, sem ég held að sé mikilvægt. (Forseti hringir.) Komi til einhverra breytinga sem þetta atriði varða þá tel ég að það sé mjög mikilvægt að það verði rætt ítarlega við aðila vinnumarkaðarins.