tímabundinn stuðningur til greiðslu launa vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Virðulegur forseti. Ég fagna þessu frumvarpi og að það sé fram komið og tel þetta bráðnauðsynlegt og mun styðja það alveg til enda. Það skiptir máli að við eyðum óvissu eins mikið og hægt er, það er algerlega nauðsynlegt. Ég hef aðeins meiri upplýsingar um frumvarpið vegna þess að hæstv. ráðherra mætti í velferðarnefnd í morgun og það hjálpaði svolítið til að skilja út á hvað þetta gengur og nefndarmenn gátu komið spurningum til ráðherra. Eins og hv. þm. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir benti á þá eru hérna ákveðnir óvissuþættir sem maður er ekki alveg búinn að ná utan um og það skiptir miklu máli að enginn falli á milli skips og bryggju í þessu.
Mig langar aðeins að reifa þetta samspil ráðningarsambandsins og þess að það verði ekki greiddur út arður, hvort það sé eitthvert sérstakt samkomulag um það. Ég veit ekki hvort Samtök atvinnulífsins hafi blessað þá ákvörðun í samráði við sína félagsmenn eða hvort fyrirtæki geti hreinlega sagt, vegna þess að þetta er skilgreint sem force majeure-ákvæði og það tekur gildi: Nei, ég ætla að ætla að borga mér arð áfram. Og viðkomandi einstaklingur neyðist þá til þess að leita bara beint til Vinnumálastofnunar. Ég treysti ekkert alltaf á góðmennsku fyrirtækja bara af því bara, þannig að maður veltir fyrir sér: Er búið að búa til eitthvert samkomulag við vinnuveitendur í Grindavík eða Samtök atvinnulífsins um að svona verði þetta?