154. löggjafarþing — 33. fundur,  20. nóv. 2023.

tímabundinn stuðningur til greiðslu launa vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

508. mál
[16:59]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svar hans. Ráðherra segir að þetta sé betra en að fara bara beint á atvinnuleysisbætur. Ef maður fer í gegnum atvinnuleysisbótakerfið erum við að tala um tekjutengdar atvinnuleysisbætur fyrstu þrjá mánuðina upp á 80% ef mig misminnir ekki. En þarna, ef ég skil hæstv. ráðherra rétt og ég ætla að biðja hann um að staðfesta það við mig, fær sá sem er undir þessum mörkum 633.000 kr., þá full laun, 100% laun. Það er algengt að fólk í verslunum eða veitingageiranum hafi ekki 600.000 kr. í laun á mánuði. Er þá verið að tryggja viðkomandi starfsmanni 100% laun og þannig verið að gera betur í þessu frumvarpi heldur en ef fólk þyrfti að fara í gegnum atvinnuleysisbótakerfið?