154. löggjafarþing — 33. fundur,  20. nóv. 2023.

tímabundinn stuðningur til greiðslu launa vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

508. mál
[17:02]
Horfa

Magnús Árni Skjöld Magnússon (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra fyrir að leggja fram þetta frumvarp hér í dag svona hratt og vel. Það er honum og hans fólki til sóma að gera það. Frumvarpið er mikilvægur þáttur í viðbrögðum ríkisins við þeim erfiðu aðstæðum sem Grindvíkingar eru í í dag og er liður í því að mæta afkomuáhyggjum þeim sem þau þurfa að búa við til viðbótar við þær ömurlegu og óbærilegu aðstæður að þurfa að flýja heimili sín og þurfa hugsanlega að sjá á bak þess sökum þeirra náttúruhamfara sem við erum að verða vitni að á Reykjanesi um þessar mundir. Hugur okkar er hjá þeim og ljóst er að ríkur vilji er á Alþingi til að standa við bakið á Grindvíkingum á þessum erfiðu tímum.

Ég vil líka þakka hv. þingmönnum fyrir þá upplýsandi umræðu sem þegar hefur farið fram um ýmis mál þessa frumvarps. Í frumvarpi hæstv. ráðherra eru margir góðir punktar sem munu gagnast vel þessa mánuði sem gert er ráð fyrir að þessar ráðstafanir munu gilda. Mikilvæg er ráðstöfunin varðandi það að þau fyrirtæki sem munu njóta þess styrks sem hér um ræðir skuli ekki greiða sér út arð út febrúar 2025 en endurgreiða styrkinn ella. Þetta er liður í að ná sátt meðal þjóðarinnar um slíka slíkar ráðstafanir.

Nú er það hins vegar svo að líklegt er að afleiðingar þessa atburðar sem þegar hefur átt sér stað muni vara lengur en fram til 29. febrúar þótt ekkert meira myndi gerast. Við þurfum að bíða af okkur allan grun um að svæðið sé orðið öruggt á ný. Miklar skemmdir hafa orðið á innviðum og húsum og það tekur tíma að laga slíkt og koma því í samt lag. Líklegt er að það muni taka atvinnulífið í Grindavík talsverðan tíma að taka við sér á ný. Í því sambandi heyri ég af umræðunni sem fram hefur farið hér í dag, virðulegur forseti, að hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra er þegar byrjaður að velta fyrir sér lengri tímaási en þessum þremur mánuðum í þessu tilliti.

Því miður erum við ekki heppin með aðstæður í samfélaginu þegar þetta áfall ríður yfir, ef hægt er að segja sem svo. Við erum tiltölulega nýkomin út úr öðru neyðarástandi. Ríkissjóður er skuldsettur, verðbólga er í hæstu hæðum, stýrivextir háir og húsnæðismarkaðurinn er eins og hann er, mjög erfiður. Sú ríkisstjórn sem nú situr er því ekki öfundsverð af þeirri stöðu sem hún er í því að ljóst er að viðbrögðin við henni munu ekki hjálpa til við að takast á við hinar slæmu aðstæður í efnahagslífinu sem hafa skapað hér lífskjarakrísu fyrir fjölda fólks, eins og við höfum þegar rætt á Alþingi í dag. Það þarf nýjar nálganir sem ég ber því miður ugg í brjósti um að sú ríkisstjórn sem nú situr hafi takmarkaðan mátt til að ráðast í. Hins vegar er það algerlega ljóst að það sem er til umfjöllunar hér í dag, að tryggja afkomu þeirra sem ekki geta stundað vinnu sína í Grindavík við þessar ömurlegu aðstæður, er forgangsmál því að við sem samfélag viljum vitaskuld gera það sem við getum til að létta af þeim eins miklu af þeim áhyggjum sem á þau herja og mögulegt er. Við í Samfylkingunni erum klárlega í liði með Grindvíkingum í þeim efnum.