154. löggjafarþing — 33. fundur,  20. nóv. 2023.

tímabundinn stuðningur til greiðslu launa vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

508. mál
[17:05]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Við erum hér að fjalla um frumvarp til laga um tímabundinn stuðning greiðslna vegna náttúruhamfaranna í Grindavík. Við í Flokki fólksins styðjum heils hugar að það skuli verið að koma því á og er þetta hið besta mál. Eins og ég hef ég sagt fengum við kynningu á þessu máli í velferðarnefnd í morgun og þar kom fram hversu viðamikið og flókið þetta mál getur verið að mörgu leyti. Við lærðum það í Covid að það er alveg ótrúlegur fjöldi sem getur lent einhvern veginn milli skips og bryggju í svona málum og eru það sérstaklega einyrkjar sem geta lent í einhverjum erfiðleikum við að fá þetta í gegn, að fá launin. Það er líka annað í þessu og það er tímalengdin. Ég held að það væri mjög sniðugt að við myndum hafa inni í nefndarálitinu í velferðarnefnd bráðabirgðaákvæði um að það sé hægt að framlengja þetta um þrjá mánuði í viðbót. Það væri svolítið gott. Þá erum við a.m.k. svona nokkurn veginn að tryggja hálft ár ef á þarf að halda.

Síðan setur maður líka spurningarmerki við arðgreiðslurnar, að það megi ekki greiða sér arð í eitt ár. Eins og kom fram í velferðarnefndinni er þetta svolítið flókið og það kom mér á óvart hversu ótrúlegur fjöldi bæði fyrirtækja og einstaklinga er starfandi í Grindavík, og svo kemur Bláa lónið líka þarna inn í. Ég held að það hafi komið fram að nærri 1.000 manns koma annars staðar frá til að vinna innan sveitarfélagsins í Grindavík, sem sýnir líka hversu umfangsmikið málið er. Ég vona þar af leiðandi að þetta ákvæði um arðgreiðslur verði ekki til þess að vinnuveitendur fari að setja það fyrir sig. Eins og kom fram áðan eru sum fyrirtæki, þótt þau séu í Grindavík, skráð með aðstöðu annars staðar þannig að maður fór að átta sig á því að þetta er mun flóknara og viðameira en maður gerði sér grein fyrir.

Málið fer þá inn í velferðarnefnd og ég mun fylgjast vel með þar. Sem betur fer er búið að boða að það verði unnið hratt og vel og við munum stefna að því að reyna að klára þetta innan viku. Ég held að við ættum að geta gert það með sóma ef við tökum höndum saman. Við höfum sýnt það hingað til hér á þingi að þegar við erum sammála um að gera hlutina gerum við þá fljótt og vel og ég efast ekki um að við munum gera það líka í þessu máli.