tímabundinn stuðningur til greiðslu launa vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir góða framsögu í þessu máli og fyrir að fara skýrt og vel yfir það og svara mikilvægum spurningum sem þingmenn hafa spurt, um framkvæmd á málinu ekki síst, sem er mjög mikilvæg, auk þess að upplýsingaflæði sé gott til þeirra sem eiga hlut að máli. Þetta skiptir miklu máli og ég vil þakka fyrir það. Ég vil að sjálfsögðu þakka ríkisstjórninni fyrir að hafa brugðist hratt og vel við þessu vegna þess að þetta tiltekna mál, um þennan tímabundna stuðning til greiðslu launa vegna náttúruhamfara í Grindavík, skiptir verulegu máli fyrir íbúa Grindavíkur. Ekki síst er þetta einnig til þess fallið að eyða þeirri óvissu sem fólk býr nú við. Það er erfitt að setja sig í spor þessa fólks, 3.800 manns sem þurftu að yfirgefa heimili sitt með mjög skömmum fyrirvara og komast ekki til síns heima núna. Það er öllum þungbært sem þar eiga hlut að máli og nú styttist til jóla og alls þess undirbúnings sem fylgir þeirri góðu hátíð. Að geta ekki verið heima við er mörgum þungbært. Hér er verið að leggja fram mjög mikilvægt mál sem léttir af fólki. Ekki síst hefur það sálrænt jákvæð áhrif að það sé verið að eyða óvissu sem er alltaf mjög slæm í aðstæðum sem þessum. Það er mikilvægt að vernda afkomu fólks, eins og lagt er upp með, sem getur ekki starfað í Grindavík vegna þess að ríkisstjórnin hefur fyrirskipað að allir þeir sem eru búsettir í Grindavík þurfi að yfirgefa byggðina.
Við vonum að sjálfsögðu, frú forseti, að þessar aðstæður vari ekki lengi og í öllu falli, sem við vonum svo sannarlega, að það verði ekki frekari náttúruhamfarir. Þó sjá Grindvíkingar ekki fram á að komast heim fyrr en á vormánuðum, held ég að megi segja, eða næsta sumar. Því miður var ég að sjá það núna í fréttum að það er búið að stækka hættusvæðið þannig að náttúruváin vofir enn yfir. En eins og ég segi enn og aftur: Vonandi líður þetta hjá. Það er mjög mikilvægt að vera viðbúin og hlusta á vísindamenn í þessum efnum og fara að þeirra ráðleggingum. En það eru líka jákvæðar fréttir. Langflest hús í Grindavík eru í góðu standi. Það eru góðar fréttir. Það er gott fyrir fólk að vita af því að húsið þess sé kannski ekki eins skemmt og fólk óttaðist þótt vissulega séu þarna hús, sérstaklega húsnæði sem er nálægt þessari sprungu sem hefur verið fjallað um, sem eru illa farin.
Varðandi nokkra þætti hvað þetta frumvarp varðar þá er mikilvægt í mínum huga, þótt það liggi mjög mikið á þessu máli, að við vöndum þessa lagasetningu og nefndin verður að fara yfir málið vel og vandlega vegna þess að það er mjög slæmt ef það kemur síðan á daginn að tilgangur laganna nær kannski ekki fram að ganga vegna þess að mönnum yfirsást einhver tiltekin atriði í lagavinnunni. Við þekkjum það í gegnum veirufaraldurinn sem gekk yfir, en þá þurfti að bregðast hratt og vel við í lagasetningu, að þá voru þar gerð mistök, því miður, sem mátti rekja til þess að menn voru að flýta sér um of. Það er ekki gott í svona lagasetningu.
Varðandi skilyrðin fyrir stuðningnum er mikilvægt að þeir sem eiga hlut að máli kynni sér þau, sérstaklega t.d. þeir sem eru sjálfstætt starfandi, þ.e. þessi skilyrði sem þarf að uppfylla og er fjallað um í frumvarpinu og hæstv. ráðherra hefur farið hér yfir. Auk þess er afar mikilvægt, og þess er getið t.d. í 9. gr., að öll gögn verða að liggja fyrir þegar sótt er um þennan stuðning vegna þess að ef það er ekki gert þá er sú hætta fyrir hendi að umsókn um þessa launafyrirgreiðslu, eða þennan styrk frá hinu opinbera, verði ekki samþykkt. Og það er mjög slæmt. Þess vegna er mikilvægt að upplýsingaflæðið — og þá frá Vinnumálastofnun, sem hefur fengið það hlutverk að sinna þessu, og það mæðir nú orðið ansi mikið á því ágæta starfsfólki sem starfar hjá Vinnumálastofnun. Eins og við þekkjum hefur Vinnumálastofnun það hlutverk að þjónusta þá sem sækja hér um alþjóðlega vernd og það hefur orðið gríðarleg fjölgun þar og nú bætist þetta hlutverk á starfsfólk Vinnumálastofnunar, þannig að ég held að það sé nú rétt að þakka því ágæta fólki fyrir vel unnin störf. Þau þurfa að bæta þessu verkefni á sig og við þökkum þeim fyrir það. Bara svo að það sé á hreinu þá er mjög mikilvægt að allar þessar upplýsingar liggi fyrir. Ég vil árétta það hér vegna þess að hafi þær ekki borist innan tiltekins tíma, sem fjallað er um í frumvarpinu, þ.e. innan 40 daga frá þeim degi þegar umsókn barst stofnuninni, þá er umsókninni synjað. Þetta er atriði sem skiptir miklu máli.
Aðeins varðandi 12. gr., varðandi arðinn, þá er þarna talað um að fyrirtæki megi ekki greiða arð í u.þ.b. eitt ár frá því að viðkomandi fyrirtæki hefur tekið við þessum greiðslum frá hinu opinbera. Þetta er náttúrlega mál sem þarf að fara mjög vandlega yfir í nefndinni. Það eru sum sjónarmið sem eru á þann veg að þetta ættu jafnvel að vera tvö ár eða þrjú ár en þetta þarf allt saman að ræða innan nefndarinnar og mikilvægt að þessi þáttur sé frágenginn og verði ekki nein álitaefni hvað það varðar.
Að lokum vil ég bara segja að í 13. gr. er fjallað um úrskurðarnefnd velferðarmála. Það er um stjórnvaldsákvarðanir að ræða þegar viðkomandi er synjað um þessa fyrirgreiðslu af hálfu hins opinbera og þá er þessi kæruleið sem er fyrir hendi og síðan er hægt að áfrýja málunum til almennra dómstóla, þannig að það sé sagt hér.
Að lokum, frú forseti, vil ég bara segja að ég vil þakka fyrir þessa vinnu. Ég veit að það er töluverð vinna innan nefndarinnar fram undan og mikilvægt að menn hafi hraðar hendur en passi upp á að það séu ekki neinir hnökrar í þessari lagasetningu. Við erum náttúrlega fyrst og fremst að hugsa til þeirra sem búa núna við þessa óvissu í Grindavík.
Ég vil bara segja það að lokum, eins og ég hef sagt hér áður, að guð gefi að það verði ekki frekari náttúruhamfarir. Grindvíkingar eru að eðlisfari bjartsýnir og ég vona svo sannarlega að þeir eigi eftir að sjá fram á betri tíma á næstu mánuðum.