tímabundinn stuðningur til greiðslu launa vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
Frú forseti. Ég ætla nú ekki að lengja þessa umræðu mikið, ég tel að það sé æskilegt að þessi mál gangi sem hraðast fyrir sig. Ég vil nota tækifærið til að hvetja stjórnvöld til dáða, sérstaklega varðandi það sem hv. þm. Jóhann Friðrik Friðriksson nefndi hér í ræðu sinni áðan um að eyða óvissu eins og kostur er og tryggja það að réttar fréttir skili sér eins og eins vel og hægt er við þær aðstæður sem nú eru í fjölmiðlum. Það þarf að sýna pólitíska forystu við þessar aðstæður. Það dugar ekki núna eingöngu að vísa á sérfræðingana, þótt við séum auðvitað mjög þakklát fyrir þeirra miklu og mikilvægu vinnu, en þeir eru ekkert endilega alltaf sammála. Þá þarf ríkisstjórnin að sýna forystu og vega og meta hvernig þurfi að bregðast við á hverjum tíma. Ég teldi t.d. æskilegt að þjóðaröryggisráð fundaði mjög reglulega á meðan aðstæður eru eins og þær eru til þess einmitt að fá upplýsingarnar frá þeim sem fylgjast með frá degi til dags, sérfræðingunum, en einnig til að taka ákvarðanir og ýta á eftir þeim. Ríkisstjórnin auðvitað ræðir þessi mál á sínum fundum eins og gengur en við þessar aðstæður þarf þjóðaröryggisráð og forysta ríkisstjórnarinnar að taka afgerandi forystu. Við verðum að hafa það í huga að stundum geta gallaðar lausnir eða ráð verið betri en fullkomin lausn sem kemur of seint. Hér er ég t.d. að velta fyrir mér vörnum fyrir Grindavík því að nú var loks ákveðið að ráðast í varnargarða fyrir Svartsengi og Bláa lónið tveimur árum eftir að umræða hófst um mikilvægi þess og farið var að hanna þau mannvirki. En mér finnst vanta upplýsingar um varnir fyrir Grindavíkurbyggðina, sérstaklega í ljósi þess hvernig þessi eldsumbrot neðan jarðar hafa þróast og færst frá því svæði þar sem kannski var upphaflega talið líklegast að hugsanlegt gos gæti hafist.
Einnig eru margir búnir að nefna það, en ég tel engu að síður ástæðu til að árétta það, að það þarf að liggja fyrir í tæka tíð hvernig stjórnvöld sjá fyrir sér að tryggingum verði háttað, hvort sem það er úr náttúruhamfarasjóði eða öðrum tryggingum, þannig að það hefjist ekki einhver ágreiningur um það eftir að hugsanlega meiri skaði er skeður. Það er þegar orðið töluvert tjón í Grindavík og ljóst að það mun verða dýrt að gera við það. Ég hvet ríkisstjórnina til að marka sér stefnu og hafa það á hreinu hvernig haldið verður á málum út frá ólíkum sviðsmyndum. Óvissustigið er slíkt að það væri mikill fengur að því fyrir Grindvíkinga, tel ég, að vita hvað tekur við ef þetta eða hitt gerist o.s.frv., að það sé allt á hreinu fyrir fram en ekki verið að bregðast við eftir að skaðinn er skeður.
Ég hvet auðvitað stjórnvöld líka til dáða við að leysa úr menntamálum og tómstundum barna. Þar hefur heilmikið starf verið unnið af ýmsum aðilum sem hafa komið þar að og í íþróttastarfinu eins og við höfum séð. En við sjáum nú þegar að það þarf að hugsa til margra mánaða og gera ráðstafanir í samræmi við það.
Svo eru það húsnæðismálin. Mér finnst ekki alveg hægt við þær aðstæður sem þegar eru komnar upp og þá óvissu sem er ríkjandi, þar sem við vitum að Grindvíkingar geta væntanlega ekki snúið aftur í bæinn sinn í marga mánuði, að þá sé sett af stað nefnd sem eigi að skoða næstu misserin hvernig brugðist verði við. Það er tímabært að hefja framkvæmdir strax. Auðvitað þurfa menn að skipuleggja sig og það getur tekið einhverja daga en þá á bara að funda eins oft og lengi og þarf til þess að taka ákvörðun og gera ráðstafanir í samræmi við það.
Fyrst og fremst, frú forseti, vildi ég nú ítreka þetta sem aðrir hafa nefnt hér, hversu mikilvægt það er að stjórnvöld taki forystu en umfram allt upplýsi fólk og komi á framfæri upplýsingum um hvernig verði brugðist við á hinum ýmsu sviðum áður en hugsanlegt meira tjón verður því að við þær aðstæður verður erfitt að taka ákvarðanir og í millitíðinni verður fólk búið að búa við viðvarandi óvissu.
Þetta eru lokaorð mín í þessari umræðu til hæstv. ráðherra og ríkisstjórnarinnar: Reynið nú að eyða óvissu eins og mögulegt er. Það á m.a. við um það sem við ræddum hér fyrr í dag, bankamálin, þar sem ríkisstjórnin segist vera í einhverjum viðræðum en hún þarf þar eins og annars staðar að sýna forystu og útskýra hvað hún vill, að hverju er stefnt.