154. löggjafarþing — 34. fundur,  21. nóv. 2023.

Störf þingsins.

[14:04]
Horfa

Ágúst Bjarni Garðarsson (F):

Virðulegur forseti. Ég held að það sé rétt að ræða hér stuttlega stöðuna sem uppi er í Grindavík. Sá sem hér stendur óskaði eftir því á sunnudaginn að bankastjórar viðskiptabankanna þriggja myndu mæta á fund efnahags- og viðskiptanefndar sem fyrst. Við þeirri beiðni var vel brugðist á öllum vígstöðvum, enda sjálfsögð í ljósi aðstæðna. Það er mikilvægt fyrir þingið að við fylgjumst vel með þeirri stöðu sem uppi er og þeirri stöðu sem við sem samfélag stöndum frammi fyrir á Reykjanesi og snertir auðvitað sérstaklega íbúa og fyrirtæki í Grindavík eins og er. Það er ómögulegt, alveg sama þótt maður sé allur af vilja gerður, að setja sig í spor þeirra einstaklinga og fyrirtækja og fjölskyldna sem hafa þurft að yfirgefa heimili sín, sem eru auðvitað griðastaður fólks. Þetta er alveg gríðarlegt rask á daglegu lífi ofan á alla þá óvissu sem til staðar er til framtíðar. Það þarf að halda lífinu gangandi; börn í skóla, leigja eða kaupa nýtt húsnæði, börn í tómstundum o.s.frv. Þetta þekkjum við auðvitað öll. Fundurinn fór fram í morgun og var að mínu mati nokkuð góður og upplýsandi. Það liggur fyrir að Grindvíkingum hefur verið boðið upp á greiðsluskjól í fyrstu viðbrögðum fjármálastofnana við stöðunni en ég held að það sé líka öllum ljóst að viðbrögð þeirra verði önnur og meiri. Við í efnahags- og viðskiptanefnd munum halda áfram að fylgjast með stöðunni og viðbrögðum fjármálafyrirtækja og gera það sem þarf til að tryggja að viðbrögðin verði í takt við þá stöðu sem uppi er á svæðinu.

Virðulegur forseti. Í mínum huga, og að ég held allra, er þetta samfélagslegt verkefni þar sem allir þurfa að taka þátt og bregðast við með afgerandi hætti og þar á ég við ríki, fjármálastofnanir, lífeyrissjóði, tryggingafélög og aðra. Það er ekki bara spurning um að geta heldur líka að verða og að sýna samfélagslega ábyrgð í verki. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)