Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Á morgun rennur enn einu sinni upp vaxtaákvörðunardagur Seðlabankans. Eins og oft áður er almenningur uggandi. Verða vextir hækkaðir einu sinni enn? Hvaða áhrif mun það hafa á matarkörfuna eða fasteignalánin? Það liggur fyrir að verðbólga er ekki að minnka. Stýrivextir eru nú þegar 9,25%. Það er ekki einfalt fyrir fólk að takast á við enn frekari hækkanir afborgana sem í mörgum tilfellum hafa tvöfaldast hjá þeim sem tóku óverðtryggð lán á sínum tíma. Staðan er önnur hjá þeim sem eru með verðtryggð lán en þar horfa margir upp á það að sjá eignarhlutinn í heimili sínu étast upp og jafnvel hverfa. Önnur staða en alls ekki betri. Það er hlutverk Seðlabankans að sjá til þess að verðbólga sé innan fyrir fram ákveðinna markmiða sem eru 2,5%. Seðlabankinn hefur hins vegar annað tæki en stýrivaxtahækkanir og það verður að teljast óeðlilegt að því sé ekki beitt í baráttunni við verðbólgu. Gjaldeyrisvarasjóður Seðlabanka er sagður mjög stór og það væri rétt af Seðlabankanum að beita honum við aðstæður sem þessar. Gengi krónunnar hefur verið að veikjast. Það hefur veikst um 4,5% síðastliðna tvo mánuði og 6% síðastliðna þrjá mánuði. Það að krónunni sé leyft að veikjast vinnur gegn markmiðum bankans um að ná niður verðbólgu og í raun óskiljanlegt að bankinn skuli leyfa gengi krónunnar að veikjast við aðstæður sem þessar. Greinendur gera sér engar vonir um að verðbólgan komi til með að minnka fyrr en í fyrsta lagi á næsta ári og það er útlit fyrir að margar fjölskyldur muni gefast upp. Að Seðlabankinn sé að vinna í sitthvora áttina gengur ekki ef við ætlum að ná einhverjum árangri í baráttu við verðbólguna og allt of háa vexti.