154. löggjafarþing — 34. fundur,  21. nóv. 2023.

Störf þingsins.

[14:13]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Fyrir tíu dögum var Grindavíkurbær rýmdur, þar sem áður var 3.800 manna fjölskyldubær, öflugt atvinnulíf og hamingjusömustu íbúarnir. Það er ekkert sem undirbýr fjölskyldur undir flótta af sínu eigin heimili og út í fullkomna óvissu, óvissu um hvar fólk geti fundið húsaskjól, hvar hægt verði að eiga heima og vinna. Þetta er þung byrði að bera, óvissan um hvar og hvernig við höldum upp á jólin, hvaða hlutverk framtíðin ætlar Grindavík. Ég stend hérna í dag ekki aðeins sem þingmaður heldur sem stoltur Grindvíkingur. Grindavík er ekki einhver staður á landakorti heldur bæjarfélag með stórt hjarta og sál, samfélag sem hefur verið byggt upp af harðduglegu vinnusömu fólki. Að standa fyrir framan húsið sitt og horfa á skemmdir á því eftir skjálftana um leið og maður hugsar til góðir minninganna þaðan eða liggja andvaka í tímabundnu lánsíbúðinni og geta ekki svarað börnunum því hvar við munum búum í næsta mánuði — á þeim augnablikum er erfitt að sjá fyrir sér bjarta framtíð en sú framtíð mun koma, lífið heldur áfram. Það er margt gott að gerast; skólinn er byrjaður aftur en á nýjum stað, íþróttafélögin hafa opnað dyr sínar fyrir börnunum okkar, fólk og fyrirtæki hafa stutt vel við bakið á okkur.

En við getum ekki lifað á góðvildinni endalaust. Þetta er ekki varanleg lausn. Það þarf að leysa fólk úr snörunni. Húsnæðis- og heimiliskostnaður okkar er að margfaldast. Allur sparnaðurinn er bundinn í heimilum okkar og húsin eru ónothæf. Það þarf að frysta húsnæðislánin strax og ríkið þarf að gera fólki kleift að kaupa sér annars staðar með sérstökum hamfaralánum sem við endurgreiðum þegar við fáum að snúa aftur til Grindavíkur sem getur verið eftir marga mánuði eða ár. Við verðum alltaf Grindvíkingar og þegar sá tími kemur (Forseti hringir.) munum við taka saman höndum við að endurbyggja Grindavík sterkari en nokkru sinni fyrr. Til þess að svo megi verða þurfum við skjóta og góða afgreiðslu okkar mála (Forseti hringir.) vegna þess að því lengri sem óvissan um búsetu verður þeim mun verri verða afleiðingarnar af atburðinum, bæði með tilliti til heilsu fólks og fjárhagslega. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)