154. löggjafarþing — 34. fundur,  21. nóv. 2023.

Störf þingsins.

[14:15]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegi forseti. Ég votta Grindvíkingum hluttekningu mína og treysti á góð viðbrögð okkar besta fólks hér í þessu húsi. Hér var í gær efnt til góðrar umræðu um áhrif hárra vaxta sem bitna á þorra heimila og fyrirtækjum landsins. Aldraðir, fátækir, öryrkjar og jafnvel venjulegt fólk í fullri vinnu á fullt í fangi með að fóta sig í þessum hrikalegu aðstæðum. Í þessum umræðum var vitnað í ákall frá Starfsgreinasambandinu um að leita óháðrar úttektar bestu sérfræðinga, innlendra sem erlendra, á kostum og göllum þess myntkerfis sem við búum við og er eitt hið smæsta í heiminum. Við slíka úttekt yrði óhjákvæmilegt að setja sjálft hagkerfi Íslands undir smásjána, því að myntin ein og sér sem við notum hér er auðvitað einungis hluti af vandamálinu sem við blasir og hefur gert frá því að elstu menn muna: Sífelldar hagsveiflur frá óðaverðbólgu til örvaxta og aftur í himinhæðir okurvaxta og vaxtarverkja.

Þetta er ekki boðlegt mikið lengur, gott fólk. Hér er ekki við neinn einn að sakast. Þetta er uppsafnaður gamall, gróinn, kerfislægur vandi og rétt eins og fyrirtækin í landinu, stór og smá, hika ekki við að leita sér ráðgjafar, ráðast í breytingar og efna til breytingastjórnunar með ærnum tilkostnaði er hinu háa Alþingi sá kostur einn nauðugur að viðurkenna að slíkt hið sama þurfi að gilda um kerfi íslenskra efnahagsmála. Kerfisbreyting er ekki bara þörf, hún er nauðsyn.

Meðal þeirra sem stefnt hefur verið í alvarlega tvísýnu af vöxtum og af völdum ofurvaxtanna eru íslenskir bændur sem að öllu jöfnu tryggja okkur fæðuöryggi og bætta lýðheilsu. Óháð efnahagsólgusjóm öllum blasir einnig við að landbúnaðarkerfið okkar er meingallað og úrelt. Kerfisbreytingar á þeim vettvangi eru afar brýnar og löngu tímabærar.

Þá vil ég að lokum nefna almanna- og sjúkratryggingakerfið á Íslandi sem hefur gengið sér til slíkrar húðar að því mætti helst líkja við eldgamla trosnaða og stagbætta flík. Nýju endurhugsuðu kerfi hefur verið lofað um árabil en ekkert bólar á því. Á meðan sitja sveltandi tugþúsundir fátæks fólks, eldri borgara, sjúklinga og öryrkja.

Virðulegi forseti. Kerfisbreytingar kunna að vera óhjákvæmilegar í fleiri flokkum en hér hafa verið upp taldir en viðurkennum að gömlu kerfin eru börn síns tíma og börnin okkar og barnabörnin eiga betra skilið.