Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Þingstörfin snúast að mestu leyti um stöðuna í Grindavík. Tímabundinn stuðningur til greiðslu launa vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ er lagafrumvarp sem þingið er að fjalla um og hefur verið í velferðarnefnd frá því í gær. Þar eru allir að leggjast á eitt við að koma því í gegn sem fyrst. Ég verð bara að segja það hér úr þessum stól að maður þakkar fyrir þá samstöðu og þann samhug sem ríkir í nefndinni um þetta mál. Til okkar koma aðilar vinnumarkaðarins og auðvitað er ýmislegt sem þeir eru spurðir um og eðlilega eru kannski ekki allir hlutir algerlega ljósir en það er mikill vilji hjá okkur í nefndinni, hjá öllum nefndarmönnum, til að gera vel.
Það er gríðarlegt atriði og eitt af lykilatriðum Grindvíkinga í dag að fjárhagslegt öryggi þeirra verði tryggt. Við byrjuðum að tala við þau strax á mánudaginn og snerum okkur líka að bönkunum og ég heyri og ég sé og les það í blöðunum að bankarnir eru að koma til baka og ætla að standa vörð um afkomu Grindvíkinga og það er mikilvægt. Grindavík er samfélag verðmætasköpunar, virðulegur forseti, og það er mikilvægt að hafa það í huga á þessum tíma hvað samfélagið í Grindavík skiptir miklu máli. Þegar ég er að tala um það, og við sendum allar okkar bestu kveðjur þangað, þá hef ég líka áhyggjur af mínum gamla heimabæ í Vestmannaeyjum þar sem vatnsleiðslan er sködduð. Þar er líka samfélag mikillar verðmætasköpunar og kannski hefðum við átt að hlusta fyrr, við þingmenn, á þau viðvörunarorð sem þaðan komu vegna vatnsleiðslunnar. Sú dökka mynd sem hægt er að draga upp af því sem gæti gerst ef á versta veg fer er náttúrlega hörmulegri en nokkur orð fá lýst. Við vonum auðvitað að það gerist ekki. En við munum standa með Vestmannaeyingum líka algerlega og vinna að því að leiðslan verði löguð og við munum tryggja rafmagn og vatn til Eyja um ókomin ár og tíð.