Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Stóra verkefnið í efnahagsmálum er að ná niður verðbólgu. Það er alveg ljóst að við erum í mikilli óvissu vegna náttúruhamfara og það mun ekki auðvelda okkur róðurinn á næstu misserum. Fram hefur komið í fjölmiðlum að verkalýðshreyfingin hefur komið þeim skilaboðum á framfæri við stjórnvöld og Samtök atvinnulífsins að til að liðka fyrir langtímasamningum þurfi að taka á kostnaðarhækkunum á öllum sviðum. Kallað er eftir því að hið opinbera, verslun, þjónusta og tryggingafélög haldi aftur af hækkunum og hækki gjaldskrár sínar ekki umfram 2,5% á næsta ári.
Ég er sammála þessari nálgun og tel að ríki og sveitarfélög eigi að ganga fram með góðu fordæmi. Æðstu embættismenn bundu sína launahækkun hér fyrr á árinu við 2,5%. Áætlaðar gjaldskrárhækkanir ríkisins eru nú 3,5%. Ljóst er að gjaldskrárhækkanir sveitarfélaga geta að öllu óbreyttu hækkað verulega þó að vissulega sé það breytilegt eftir málaflokkum. Ég hef lagt áherslu á það, virðulegi forseti, að til þess að ná niður verðbólgu verðum við öll að ganga í takt. Ég vil skora á sveitarfélög í landinu að fylgja fordæmi ríkisins og hækka gjaldskrá sína í mesta lagi um 3,5%. Lægri verðbólga mun koma sveitarfélögunum vel til lengri tíma og skilaboðin væru skýr. Samtök atvinnulífsins gætu beint því sama til sinna félagsmanna og þannig stutt við langtímakjarasamninga þar sem kaupmátturinn væri varinn hér á landi og hefði jákvæð áhrif á verðbólgu til lækkunar og þar með lækkunar vaxta. Það er mikilvægt að við náum hér samvinnusamningum til lengri tíma, okkur öllum til hagsbóta.