154. löggjafarþing — 34. fundur,  21. nóv. 2023.

Störf þingsins.

[14:27]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Stjórnvöld standa frammi fyrir risavöxnu verkefni næstu misserin og það er nauðsynlegt að við stöndum þétt að baki Grindvíkingum í þeirra hremmingum. Ég vil ítreka stuðning Samfylkingarinnar við allar nauðsynlegar aðgerðir.

Því miður er í fleiri horn að líta, herra forseti. Mikil verðbólga og háir vextir hafa hitt mjög marga illa, ekki síst fólk á húsnæðismarkaði. Mig langar nú mitt í fjárlagavinnunni að minna á mjög erfiða stöðu bænda í landinu. Á tyllidögum er þingmönnum tíðrætt um mikilvægi innlendrar matvælaframleiðslu og er rétt að vekja athygli á því nú þegar margir bændur standa andspænis mjög illviðráðanlegum aðstæðum. Kjararannsóknir hafa sýnt að bændur eru mjög launalitlir, reksturinn ber ekki aukavinnuafl og þeir eru bundnir búum sínum allt árið og komast ekki í frí. Auk þess hafa miklar og oft nauðsynlegar fjárfestingar komið harkalega í andlitið á þeim nú í því háa vaxtaumhverfi sem við búum í. Það er hætta á að margir ungir bændur leggi upp laupana og nýliðun verði engin ef ekki verður gripið til róttækra aðgerða.

Herra forseti. Það þarf tvennt að koma til; lausnir á bráðavanda sem gætu t.d. verið í formi vaxtabóta en einnig aðgerðir sem miða að því að bæta stöðu landbúnaðar til framtíðar. Þar þarf að bæta rekstraraðstæður afurðastöðva en einnig að horfa til fjárfestingarstyrkja og hagstæðara langtímalána til bænda. Þar gætum við t.d. lært af Norðmönnum en einnig af styrkjaumhverfi Evrópusambandsins.

Herra forseti. Þeir flokkar sem nú mynda ríkisstjórn á þingi bera öðrum fremur ábyrgð á því hvernig starfsumhverfi landbúnaðarins hefur þróast síðustu áratugi. Sumir af þeim hafa meira að segja gumað af því að vera sérstakir málsvarar bænda umfram aðra flokka á þingi en samt erum við í þessari stöðu. Nú verður að bregðast harkalega við.