Störf þingsins.
Forseti. Ég var að koma úr tveggja vikna ferð á allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna og heimsókn til Washington DC, eins og hv. þm. Hanna Katrín Friðriksson gerði grein fyrir í upphafi starfa þingsins. Þar vorum við fjögur, hv. þingmenn Hanna Katrín Friðriksson, ég, Vilhjálmur Árnason og Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, á hinum ýmsu fundum þar sem skoðaðar voru ansi margar stofnanir með ansi margar skammstafanir. Það var UNCCD eða Samtök gegn eyðimerkurmyndun, það var UN Women, það var OCHA eða samhæfingarskrifstofa aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum, það var UNHCR eða Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, það var UNDP og UNDDP, World Health Organization, World Food Programme, ICJ, og UNRWA og ég veit ekki hvað og hvað, við drukknuðum bókstaflega í skammstöfunum. Það var hins vegar ekki alveg svo í Washington þar sem við heimsóttum þjóðaröryggisráðið og ýmislegt svoleiðis, sem var alveg gríðarlega áhugavert og ég verð eiginlega að nota þetta tækifæri til að hrósa utanríkisþjónustunni sem við vorum þarna í samskiptum við bæði í New York og Washington. Þessi dagskrá sem þau settu saman fyrir okkur var alveg frábær. Það var tekið mikið tillit til þeirra óska sem við höfðum um aðila sem vildum hitta og við fengum til fundar við okkar alveg gríðarlega áhugavert og hæfileikaríkt fólk til að útskýra fyrir okkur þá stöðu sem er bæði á Gaza og í Úkraínu.
Ég verð að segja að það er mikið hægt að læra af þessum stofnunum sem eiga í þó nokkuð miklum vandræðum með fjármögnun. Þau útskýrðu það sérstaklega fyrir okkur að þau verkefni sem Íslendingar fjármagna þarna (Forseti hringir.) eru almenn fjármögnun, en margar aðrar þjóðir eru farnar að fjármagna sérhæfð verkefni og gerir það þeim mjög erfitt fyrir að standa undir þeirri starfsemi sem þessum stofnunum (Forseti hringir.) er almennt gert að standa undir. Þannig að við þökkum kærlega fyrir og biðjum fyrir bestu kveðjur til New York og Washington.