búvörulög.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir fína yfirferð yfir málið og verð að segja að ég hlakka til að fá þetta mál til meðferðar í atvinnuveganefnd. Við fengum smjörþefinn af þessu síðastliðinn vetur þegar málið var á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar en það var svo sem lent undir hnífnum áður en að því kom vegna umfangsmikillar gagnrýni sem kom á málið. Þar ber helst að nefna þær leiðréttingar, ef ég má svo segja, eða lagfæringar sem hafa verið gerðar á málinu og bara svo dæmi sé tekið var afurðastöðvum upphaflega veitt heimild til undanþágu frá samkeppnislögum en nú er verið að tala um frumframleiðendur. Þetta er kannski kjarninn í þeirri gagnrýni sem oft hefur verið lögð á borð þegar kemur að málefnum bænda, að margt af því sem gert hefur verið hefur farið annað en akkúrat til bænda sjálfra, sem ég held að ekkert okkar velkist í vafa um að þurfi aðstoðar við í ljósi erfiðrar stöðu. Ég veit að hæstv. ráðherra — vegna þess að ég sá hana þar sem við vorum á fundi ungra bænda undir yfirskriftinni Laun fyrir lífi. Það má líka nefna fundaröð Bændasamtakanna þar sem þau hafa farið yfir þessa gríðarlega miklu erfiðleika sem greinin stendur frammi fyrir vegna efnahagsástandsins en líka vegna þess að við höfum því miður ekki borið gæfu til þess að búa til kerfi sem styður nákvæmlega við bændurna þó svo að umtalsverðum fjármunum sé varið í atvinnugreinina. Ég held að flestir sjái að þar er hægt að gera betur. Ég verð að segja að mér finnst í ljósi þess hve ákallið er mikið svolítið súrt að sjá fyrsta skrefið vera það að víkja til hliðar ákvæðum samkeppnislaga, vegna þess að þetta mál er þannig.
Mig langaði til að spyrja hæstv. ráðherra, af því að hún fór yfir það hér sjálf í lokin að þetta væri fyrsta skrefið af mörgum: Hvers má vænta á næstunni? (Forseti hringir.) Ég er annars vegar að spyrja þá um breytingar eða aðgerðir sem heyra beint undir málaflokk ráðherra (Forseti hringir.) en líka kollega í fjármálaráðuneytinu. Hvað er ríkisstjórnin að hugsa varðandi aðgerðir til aðstoðar landbúnaði?