kvikmyndalög.
Virðulegi forseti. Ég vil bara ítreka það, til að mynda ef spurt er út í styrkjaflokkinn og hvernig hann er fjármagnaður, þá er hann fjármagnaður úr Kvikmyndasjóði og hefur verið fjármagnaður úr Kvikmyndasjóði. Við erum að skýra þetta og búa til frekari heimildir, sér í lagi varðandi t.d. sjónvarpsþáttagerð, ef sjónvarpsþáttagerðin skilar ákveðnum hagnaði þá skal núna þessi hagnaður renna til Kvikmyndamiðstöðvar. Það er það sem er að gerast. Ég bara ítreka það að við erum ekki að auka útgjöld eða að styrkja við Kvikmyndasjóð, þó að ráðherrann sé auðvitað alltaf til í að gera það varðandi til að mynda Kvikmyndamiðstöð og margar aðrar skapandi greinar, en við erum ekki að gera það. Ég skil hvert hv. þingmaður er að fara en þetta rúmast allt innan þeirra fjárheimilda sem Kvikmyndamiðstöð er úthlutað. Það er líka svo, hv. þingmaður, að það á sér stað líka ákveðin forgangsröðun. Við fagráðherrarnir óskum auðvitað eftir, þegar við erum ekki að auka útgjöld vegna tiltekinna lagabreytinga, forgangsröðun verkefna út frá lögunum.