154. löggjafarþing — 35. fundur,  22. nóv. 2023.

Störf þingsins.

[15:08]
Horfa

Ragna Sigurðardóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Í dag berast fréttir af því að á Landspítala hafi að undanförnu legið töluvert fleiri sjúklingar en starfsfólk sjúkrahússins getur sinnt. Er þetta þriðja tilkynningin á fjórum vikum frá Landspítalanum þess efnis. Í viðtali við Hjalta Má Björnsson, yfirlækni bráðalækninga, í hádegisfréttum RÚV kemur fram að enn liggi töluverður fjöldi á Landspítalanum í svokölluðum biðplássum, þ.e. þeir einstaklingar eru tilbúnir til útskriftar af sjúkrahúsi en bíða eftir plássi á hjúkrunarheimili. Jafnframt kemur fram að 60–80 einstaklingar liggi inni á Landspítala á hverjum tíma umfram þann fjölda sem spítalinn er talinn geta sinnt. Þetta er ekkert nýtt enda hefur rúmanýting á Landspítala, sem miðast við að eigi að vera um 85%, verið yfir 100% í fleiri ár. Til þess að laga þetta ástand þarf stórátak í uppbyggingu hjúkrunarrýma. Lagðar hafa verið fram áætlanir þess efnis en þeim verður að fylgja fjármagn.

Hæstv. forseti. Það er hægt að tala endalaust um að skoða málin og leggja fram stefnur og aðgerðaáætlanir en ef ekkert kemur fram í fjárlögum um aukna uppbyggingu hjúkrunarrýma, til aukningar við það sem var á fyrra ári, eru það orðin tóm.