Störf þingsins.
Forseti. Stór hluti starfa okkar á þingi snýst um ákveðið gæðaeftirlit, að fylgjast með störfum framkvæmdarvaldsins og átta okkur á því hvað er verið að gera við peningana sem við samþykkjum hér í fjárlögum. Stór hluti þess að átta okkur á því hver staðan er er að við fáum upplýsingar í gegnum fyrirspurnir, annaðhvort formlegar þingfyrirspurnir eða fyrirspurnir í gegnum nefndir. Það er dálítið vandamál að sinna svona gæðaeftirlitsstarfi þegar svör berast seint og eru oft ekki fullnægjandi sem gerir það að verkum að það þarf að spyrja aftur og aftur. Til dæmis bárust nú í september u.þ.b. 80 formlegar fyrirspurnir á þingi til skriflegs svars. Helmingi þeirra hefur verið svarað sem þýðir að þær fyrirspurnir sem ekki hefur verið svarað eru á þreföldum þeim tímafresti sem leyfður er á svörum samkvæmt þingsköpum. Þetta á við um fyrirspurnir sem ég hef t.d. verið með varðandi skerðingar á ellilífeyri vegna greiðslna úr almannatryggingum.
Þetta á einmitt oft við um fyrirspurnir sem maður leggur til inni í nefndum þar sem það hvernig framkvæmd fjárlaga eða öðru er háttað virðist stangast á við lög og reglur. Svörin þá eru sérstaklega slæm. Það finnst mér áhugavert af því að það er mjög vel skilgreint bæði í lögum og í siðareglum starfsmanna ríkisins að þar sé heiðarleiki í forgrunni. Það þarf þá líka að vera þor til að svara heiðarlega um þá hluti (Forseti hringir.) sem fara úrskeiðis.