154. löggjafarþing — 35. fundur,  22. nóv. 2023.

Störf þingsins.

[15:15]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Á fundi í gær um áherslur Íslands á loftslagsþingi Sameinuðu þjóðanna spurði ég orkumálaráðherra, sem sinnir umhverfismálum stundum í hjáverkum, hvers vegna velsældarhagkerfið væri ekki áherslumál á þinginu sem hefst í næstu viku. Ég spurði vegna þess að í kafla stjórnarsáttmálans sem fjallar um utanríkis- og alþjóðamál er einmitt fjallað um velsældarhagkerfi sem áherslumál. Ráðherra svaraði að hann væri að forgangsraða áherslum sem ná árangri — ekki mikil traustsyfirlýsing á þetta risastóra loftslagsmál sem snýst um að uppfæra hagkerfið okkar og hætta að horfa á hagvöxt sem eina mælitækið á gæði samfélagsins, að hætta að láta öll ríkisfjármálin snúast um að keyra upp hagvöxtinn, að hámarka neyslu og framleiða meira og meira, algjörlega óháð gæðum og áhrifum sem það hefur á umhverfið, áhrifum sem það hefur á líf fólks. Velsældarhagkerfið horfir til fleiri þátta, t.d. hvort það sé auðvelt að eignast húsnæði; er umhverfið heilsusamlegt, er menntakerfið gott, er mikil lýðræðisleg þátttaka, hvernig er geðheilbrigði þjóðarinnar, sofum við nóg, höfum við tíma og getu til að mynda heilbrigð og djúp tengsl, upplifum við tilgang, erum við í tengslum við náttúruna o.s.frv.? Núverandi hagkerfi er hannað til að krefjast endalauss vaxtar. Þannig er hámörkun neyslunnar sjálfstætt og réttlætanlegt markmið og virði manneskjunnar, virði okkar, er skilgreint út frá því hversu mikið við getum framleitt og hversu mikla neyslu við getum stundað.

Forseti. Þetta hagkerfi með þessum hvötum er rótin að þeirri geðheilsukrísu, þeirri neyslukrísu, þeirri loftslagsvá sem við stöndum frammi fyrir og mér finnst það bara óheiðarleg ríkisstjórn sem skreytir sig með þessu gríðarlega mikilvæga máli á tyllidögum en þegar kemur að því að raunverulega setja það á dagskrána kemur bersýnilega í ljós að það er engin alvara á bak við fögur fyrirheit um velsældarsamfélag og velsældarhagkerfi. Því miður, hagvaxtarfíknin (Forseti hringir.) keyrir okkur áfram í áframhaldandi og vaxandi loftslagsvá og engin meðferð er í augsýn.