Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég ætla að gera störf þingsins að mínu umræðuefni eins og gert er ráð fyrir í yfirskrift þessa dagskrárliðar. Hið háa Alþingi, hið virðulega Alþingi með öllum hinum hv. eða hæstv. þjóðkjörnu starfsmönnum hér í þingsal nýtur nú þess vafasama heiðurs að vera eini fundarsalur höfuðborgarsvæðisins sem er nánast með daglega fundi og sem ekki gefur kost á þeirri sjálfsögðu nútímatækni sem gerir manni kleift að sýna með myndrænum hætti skiptingu kökunnar eða fjölda þessa hóps eða hins og þróun mála í myndmáli. Hin æruverðuga sjónvarpsstöð á Alþingi.is, sem sumir horfa á og aðrir ekki, er sennilega einhver fábreyttasta útsending sem gefst kostur á í heiminum en gæti verið einhver besti fræðslumiðill fyrir almenning sem hægt væri að bjóða upp á í stjórnmálafræðunum og samfélagsfræðunum öllum.
Gott og vel, ég hef vakið máls á þessu áður og mun gera það aftur að óbreyttu. Hins vegar erum við á nýjum þröskuldi tæknibyltingar þar sem gervigreindin er til umræðu. Ég er ósammála því nafni. Það er niðurlægjandi nafn á þessa tækninýjung. Það ætti að vera eins konar samgreind eða algreind — alnetið var það kallað á sínum tíma — en engu að síður getum við vonandi áður en langt um líður nýtt gervigreind til að efla með okkur lýðræðið svo menn tali ekki hér daginn út og daginn inn út í tómið, þar sem enginn er að hlusta, úr þessum stóli eða sérstaklega nefndastólum. Við getum fengið algreindina eða gervigreindina okkur til atfylgis og skoðað hver var niðurstaða dagsins, (Forseti hringir.) hver var niðurstaðan í málinu, og sent hana áfram til framkvæmdarvaldsins í þágu heildarinnar. Þetta er mín skammtímasýn og framtíðarsýn í senn. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)