154. löggjafarþing — 35. fundur,  22. nóv. 2023.

Störf þingsins.

[15:24]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Varnir gegn hagsmunaárekstrum hjá æðstu handhöfum framkvæmdarvaldsins voru gerðar að lögum í kjölfar ábendinga alþjóðastofnana um að hér á landi væri lítið um slíkar varnir. Á þessum tíma var ég formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og tók þátt í meðferð þess máls og upplifði þá að það væri verið að haka í ákveðið box frekar en að reyna raunverulega að gera allt sem gera mætti til að varna hagsmunaárekstrum hjá æðstu handhöfum framkvæmdarvaldsins. Þannig er það hlutverk forsætisráðherra að hafa eftirlit með stjórnsýslu, þ.e. hagsmunaárekstrum hjá ráðuneytum samráðherra sinna í ríkisstjórn, og sömuleiðis hefur hún ekkert eftirlit með því hvort ráðherrar í ríkisstjórn skrái rétt í fasteignaskrá eða hvort þeir hafi verið með einhverja hagsmunaárekstra. Hún hefur einhvers konar ráðgjafarhlutverk.

Tillögum okkar í minni hlutanum um að setja á fót sjálfstæða nefnd sem myndi hafa eftirlit með þessu og tryggja að rétt sé sagt frá í hagsmunaskrá ráðherra og að eitthvað gerist ef ráðherra lýgur til um sína hagsmuni var hafnað. Inn í lögin var þó sett ákveðið snúningshurðarákvæði, eins og það er kallað, sem gekk út á það að varna því að ráðherrar, ráðuneytisstjórar og skrifstofustjórar í ráðuneytum gætu gengið beint inn í störf til hagsmunaaðila og tekið til starfa á sama málefnasviði og ráðuneyti þeirra með allar þessar upplýsingar sem þau hafa úr farteskinu frá hinu opinbera. Þetta mega þeir þá ekki gera í sex mánuði. Við settum líka fram breytingartillögu um að þetta myndi ná til aðstoðarmanna ráðherra enda eru þeir nánustu samstarfsmenn ráðherra og hafa aðgengi að gríðarlegu magni af upplýsingum. Þessu var líka hafnað af meiri hlutanum. Nú er það svo að aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra hefur gengið til Klíníkurinnar, í stjórnunarstöðu þar, á sama tíma og heilbrigðisráðuneytið er að íhuga að gera enn einn samning við Klíníkina. (Forseti hringir.) Þetta kalla ég ekki varnir gegn hagsmunaárekstrum.