154. löggjafarþing — 35. fundur,  22. nóv. 2023.

sjálfstæði og fullveldi Palestínu.

510. mál
[15:37]
Horfa

Birgir Þórarinsson (S):

Herra forseti. Ísland var fyrsta ríkið í Vestur- og Norður-Evrópu til að viðurkenna sjálfstæði Palestínu. Það hafa 139 ríki viðurkennt Palestínu. Ríki eins og Bandaríkin, Bretland og Frakkland hafa ekki viðurkennt Palestínu. Ég átti fund fyrir skömmu með stjórnvöldum í Ramallah um stöðuna fyrir botni Miðjarðarhafs og þeir byrjuðu fundinn á því að þakka fyrir stuðning Íslands. Þeir bera mikla virðingu fyrir Íslandi og horfa upp til okkar.

Herra forseti. Ég sé enga þörf fyrir þessa skýrslu. Ég get svarað þessu hér og nú: Við höfum staðið okkur frábærlega.