154. löggjafarþing — 35. fundur,  22. nóv. 2023.

húsnæðisstefna fyrir árin 2024--2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024--2028.

509. mál
[15:50]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Það er auðvitað alltaf skynsamlegt að gera ráðstafanir til framtíðar, sérstaklega ef við erum að hysja upp um okkur buxurnar eftir aðgerðaleysi. Ég fagna í sjálfu sér þessari umræðu. Ég mun koma inn á stefnuna í ræðu en mig langar að spyrja hins vegar ráðherra, af því að við erum hér í núinu. Í rúmt ár hefur Samfylkingin kynnt og kallað eftir leigubremsu. Ríkisstjórnin hafði raunar boðað húsaleigulög í september en það bólar ekkert á þeim enn þá. Nú er eins og hugmyndin um leigubremsuna sé komin á ís en kynnt til sögunnar eitthvað sem er heitir leiguteygja. Í fyrsta lagi langar mig að spyrja hvort það sé rétt hjá mér að leigubremsan muni ekki koma hér inn í haust, sem hefði verið heppilegt við núverandi aðstæður. Í öðru lagi langar mig að heyra frá ráðherra hvað leiguteygja er og svo að lokum hvort hann geti dagsett húsaleigulögin.