154. löggjafarþing — 35. fundur,  22. nóv. 2023.

húsnæðisstefna fyrir árin 2024--2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024--2028.

509. mál
[15:54]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Við ræðum hér tillögu til þingsályktunar um húsnæðisstefnu fyrir árin 2024–2038. Þetta er stórt og mikið plagg og verður áhugavert að fara í gegnum það í velferðarnefnd í framhaldinu. Það vekur athygli mína þegar ég horfi á þessar tölur sem eru nefndar þarna í niðurbroti á ramma fjármálaáætlunar að þar er verið að gera ráð fyrir húsnæðisbótum upp á 9 milljarða á hverju ári. Mér finnst skrýtið að það sé verið að leggja fram sömu töluna ár eftir ár af því að markmið þessarar stefnu er að bæta og auka húsnæði og þar með væntanlega fjölda þeirra sem eiga húsnæði. Það mun að sjálfsögðu hafa í för með sér að það þarf að greiða meira í húsnæðisbætur, nema það eigi hvorki að verðbæta þetta til lengri tíma (Forseti hringir.) né gera ráð fyrir að íbúðaeigendum fjölgi neitt á markaði.