húsnæðisstefna fyrir árin 2024--2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Virðulegur forseti. Aðeins varðandi húsnæðisbæturnar og upphæðir þar þá eru þessar fjárhæðir í góðum málum núna miðað við þau plön sem við höfum séð raungerast. Þær eru í samræmi við fjármálaáætlun þannig að þær myndu auðvitað bara taka breytingum eftir fjárlögum ef það verður breyting á. En aftur skiptir þarna máli að auka framboð frekar en að vera alltaf að hækka bætur, af því að það er eftirspurnarhvetjandi.
Varðandi lífeyrissjóðina þá er þetta mjög mikilvægur punktur sem hv. þingmaður kemur inn á. Hluti af aðgerðunum lýtur að því einmitt að fá lífeyrissjóðina með okkur í lið til að fjármagna með beinum hætti, ekki þeim óbeina sem þeir taka þátt í, og þar mun þurfa lagabreytingar. Ein lagabreytingin er t.d. sú að það þarf að heimila lífeyrissjóðum að taka þátt í svona verkefnum án þess að þessi heimild takmarkist við 20%, sem kallar þá á að fimm lífeyrissjóðir þurfi að koma saman að verkefnum. Það væri eðlilegt að það væri nóg að þeir væru tveir til að mynda og hafa sumir jafnvel gengið lengra. Þetta kallar á lagabreytingu. (Forseti hringir.) Og eins ef við færum inn í hugmyndafræði REIT, þá þarf líka lagabreytingu. En að þessu er verið að vinna í starfshópum.