154. löggjafarþing — 35. fundur,  22. nóv. 2023.

húsnæðisstefna fyrir árin 2024--2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024--2028.

509. mál
[16:02]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Hitt atriðið sem ég hefði áhuga á að spyrja hann út í núna er að við ræðum mjög mikið um framboð og framboðsvanda. Hin hliðin á þeim peningi er að við erum allt að því heimsmeistarar í fólksfjölgun sem hefur með innflutt vinnuafl að gera, sem hefur með mikla sókn ferðaþjónustunnar gera. Það eru jú jákvæð tíðindi en tíðindi sem birtast okkur víðs vegar í samfélaginu, þ.e. afleiðingar þess.

Er hægt að ræða húsnæðisstefnu til lengri tíma litið án þess að ræða ferðaþjónustu samhliða, fólk sem flyst til landsins til þess að byggja húsnæði, en ekki síst til að vinna í ferðaþjónustu og ferðamennina sjálfa, án áhrifa á leiguhúsnæði og Airbnb? Ráðherra þekkir þessa mynd eflaust langtum betur en ég. En ég spyr mig: Verðum við ekki samhliða að ræða þá atvinnustefnu sem birtist í ferðaþjónustunni, ef markmiðið er að ná tökum á húsnæðismarkaði?