154. löggjafarþing — 35. fundur,  22. nóv. 2023.

húsnæðisstefna fyrir árin 2024--2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024--2028.

509. mál
[16:04]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég er eiginlega bara með eina einfalda spurningu fyrir ráðherra: Hvenær verður búið að vinna upp óuppfyllta húsnæðisþörf? Ég er búinn að vera að spyrja þessarar spurningar í þó nokkuð mörg ár. Það er alltaf sagt eftir tíu ár, á næsta ári er sagt eftir tíu ár o.s.frv. Það kemur fram í greinargerð þessarar tillögu að áætlun um 35.000 nýjar íbúðir á næstu tíu árum, sem er líklega ekki nóg til að vinna upp óuppfyllta íbúðaþörf, muni ekki nást því að það byggjast rétt rúmlega 2.000 íbúðir á hverju ári næstu árin til 2026 alla vega, sem er langt frá þeim 3.500 sem þyrfti að ná á ári til að ná 35.000 á tíu árum. Þannig að spurningin er einföld: Miðað við fjármagnið sem kemur fram hérna í upphafi tillögunnar, hvenær er gert ráð fyrir því að fjármagnið dekki þann fjölda íbúða sem þarf að byggja til þess að ná að klára að vinna upp þessa óuppfylltu íbúðaþörf?