154. löggjafarþing — 35. fundur,  22. nóv. 2023.

húsnæðisstefna fyrir árin 2024--2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024--2028.

509. mál
[16:52]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Mér þykir þetta vera áhugaverð þingsályktunartillaga því það skiptir okkur svo miklu máli að hafa öruggt þak yfir höfuðið. Því miður eru bara ansi margir sem búa ekki við það öryggi á Íslandi í dag. Við erum með mjög vanþroskaðan leigumarkað þar sem eitthvert frumskógarlögmál ríkir og það er ekkert öryggi þar. Ef maður ber leigumarkaðinn saman við leigumarkaði annars staðar á Norðurlöndum t.d. þá hefur fólk val um það að leigja bara nánast alla sína ævi í sama húsnæðinu ef það kýs. En hér búa leigjendur ekki við slíkt öryggi.

Hæstv. ráðherra nefndi hér að við aðhylltumst einhverja séreignarhúsnæðisstefnu. Ef við værum með einhverja almennilega leigjendastefnu þá held ég að það væru margir sem myndu kjósa að vera á leigumarkaði ef fyllsta öryggis væri gætt og einhver stöðugleiki væri á markaði. En slíku er ekki að dreifa hér á Íslandi.

Það er bara þannig núna að þrátt fyrir fyrirheit um að byggja þúsundir íbúða á næstu árum þá er ekkert slíkt að sjá í kortunum. Við erum núna að upplifa að það sé búið að gera einhverja samninga við einstök sveitarfélög og markmiðið er að byggja 4.500 íbúðir á ári næstu árin. Maður sér ekki, miðað við stöðuna eins og hún er núna, að það muni ganga upp á einhvern hátt því að við heyrum í byggingarverktökum sem eru hreinlega að draga saman seglin. Þeir ráða ekki við þann vaxtakostnað sem verið er að leggja á byggingarverktaka. Það mun auðvitað gera það að verkum að samdráttur á byggingamarkaði verður áfram til staðar. Þrátt fyrir að það sé ekki komin kreppa endilega á byggingamarkaði núna, af því að það voru talsvert margar byggingar komnar af stað, þá munum við lenda í einhverri lægð innan ekki margra ára sem getur þýtt að við upplifum aðra bólu og aðra verðbólgu samfara því, þannig að þetta er bara mjög snúið ástand. Það er kannski það sem við þurfum að horfa til í þessu, þessu lykilviðfangsefni húsnæðisstefnu númer eitt, það er þessi stöðugleiki á húsnæðismarkaði sem þarf að vera til staðar og þar er nefnt að það þurfi að vera fjölbreytt framboð íbúða sem mæti þörf. Þar erum við jú að læra talsvert. Lögin um almennar íbúðir hafa búið til möguleika fyrir fólk sem skipta miklu máli, fólk sem er ekki endilega í félagslegu húsnæði hjá sveitarfélögunum. Við erum með hlutdeildarlánin sem eru líka ný af nálinni og þau hjálpa til. Síðan er auðvitað bara almennur markaður sem sér um rest. Fjölbreytileikinn hefur verið að aukast en það þarf að viðhalda stöðugleika í uppbyggingu íbúða sem má ekki bara rokka upp og niður eftir einhverjum verðbólgutakti í samfélaginu.

Þarna er líka nefnd skilvirk stjórnsýsla á sviði húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsmála. Ég þekki það bara úr mínum heimabæ, það eru þessar rafrænu umsóknir sem hafa verið settar á laggirnar þar og hafa hjálpað til að gögn berist þá þannig að það sé ekki verið að taka einhverjar ákvarðanir án þess að hafa öll tiltekin gögn í höndunum og það skiptir miklu máli. Ég heyrði það á Húsnæðis- og mannvirkjastofnun einhvern tímann á fundi í fjárlaganefnd að Reykjanesbær hefði stigið stór skref og verið til fyrirmyndar og til fyrirmyndar fyrir önnur sveitarfélög.

Þegar við erum að byggja, og við þurfum að byggja, þá þarf líka að skoða möguleika sveitarfélaga til að byggja upp þá innviði sem þurfa að vera til staðar þar sem verið er að reisa byggingar. Það dugar ekki bara að henda upp hellingi af íbúðarhúsnæði ef innviðir eru svo ekki til staðar. Þeir geta verið ansi dýrir. Það þarf að byggja skóla, það þarf að byggja leikskóla og einhverja þjónustu aðra sem fólk vill ganga að sem vísri. Allt þarf þetta að fara saman þannig að sveitarfélögin hafi þá möguleika á því að byggja upp þá innviði sem þurfa að vera til staðar.

Í lauslegri yfirferð yfir þetta var nefnt að ríkið þyrfti að leggja til land til þeirrar uppbyggingar sem fram undan væri og ég held að það sé bara bráðnauðsynlegt að ríkið fari að skoða með hvaða hætti það geti komið landi sem það á, m.a. bara í sveitarfélögunum sjálfum, þannig að það sé hægt að byggja tiltölulega ódýrt eða ódýrara en við erum að gera núna. Sala á byggingarrétti hefur orsakað það að byggingarkostnaður hefur rokið upp, m.a. í Reykjavík. Það er bara eftirspurn eftir lóðum og menn bara bjóða og hæstbjóðandi fær. Þetta gerir það að verkum að það er ekki fyrir hvern sem er að kaupa. Þegar greiðslumat er þannig að þú stenst það ekki upp á kannski 200.000 á mánuði þegar þú ert að borga húsaleigu upp á 300.000 á mánuði þá er þetta farið að verða svolítið skringilegt.

Mér finnst líka, og Viðreisn leggur áherslu á það, að við þurfum að styðja með einhverjum hætti enn frekar við fyrstu kaupendur, sem er algerlega nauðsynlegt. Fyrstu kaupendur eiga bara orðið mjög erfitt með að komast inn á markað og standast illa greiðslumat. Við vitum auðvitað að fyrstu kaupendur eru ungt fólk sem er kannski sá hópur sem er með lægstu tekjur á vinnumarkaði en mun auka tekjur sínar eftir því sem fram vindur. Mér finnst greiðslumat vera svolítið sérkennilegt, að meta akkúrat einhverjar punktastöðu hjá viðkomandi, því að við megum gera ráð fyrir því að yfir starfsævi munum við auka tekjur okkar. Það þýðir auðvitað að fyrstu kaupendur, sem eru kannski tiltölulega tekjulitlir núna, eiga betur með að ráða við afborganir á seinni tíma, eftir fimm eða tíu ár, þegar þeir eru búnir að öðlast reynslu á vinnumarkaði og hafa fengið þær hækkanir sem tilheyra því að öðlast starfsreynslu. Það þarf að skoða þetta. Það er ekki gott kerfi hjá okkur að ungt fólk þurfi kannski að eiga 20 milljónir til að komast inn á markað. Það bara gengur ekki. Það getur nánast enginn unglingur eða ungmenni átt slíka sjóði heima hjá sér. Þau komast ekki inn á markað nema með hjálp foreldra sinna eða einhverra ættmenna sem geta lagt fram einhverja fjármuni. En þegar þú átt mörg börn þá er slíkt ómögulegt, ekki hægt.

Mér finnst líka eðlilegt að það verði skoðað hvort einhverjar ívilnanir, umfram aðra sem eru að kaupa, til handa fyrstu kaupendum eigi sér stað og ríkið komi þar inn. Hlutdeildarlánin og almennar íbúðir geta auðvitað hjálpað ungu fólki en það hefur nú svo sem tíðkast að niðurgreiða vexti til handa ungu fólki sem er að koma sér inn á markað. Ég held að sú leið gæti bara verið ágæt til að standa með ungu fólki. Við getum ekki búið samfélagið til þannig að ungmenni komist ekki að heiman og séu bara í foreldrahúsum langt fram á miðjan aldur, en þannig er staðan í dag.

Eins og ég segi er þetta athyglisvert plagg. Maður hefur svo sem ekki náð að skoða það djúpt en ég sit í velferðarnefnd og fæ það verkefni að rýna þetta og hlakka bara til, því að það að til sé stefna í húsnæðismálum skiptir samfélagið okkar miklu máli. Þetta er eitt af þeim atriðum sem er hvað brýnast að leysa í samfélagi okkar, ég tala nú ekki um það þegar sú staða er komin upp að heilt samfélag er hugsanlega að leggjast niður, að við spýtum í lófana og gerum það sem við getum til þess að fjölga úrræðum á húsnæðismarkaði.