154. löggjafarþing — 35. fundur,  22. nóv. 2023.

dreifing starfa.

453. mál
[17:29]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil nú byrja á því að þakka hv. þm. Hönnu Katrínu Friðriksson fyrir mjög áhugaverða tillögu sem ber heitið Dreifing starfa. Þetta er held ég mjög spennandi verkefni og ég skil vel að það er kannski ekkert endilega afmarkað eða skilgreint, eins og hv. þingmaður kom inn á í lok síns máls, niður á hugsanlegar afleiðingar af því að geta nálgast þessi gögn og nýtt sér þau í þeim tilgangi sem hv. þingmaður rakti mjög ágætlega. Ég vil þó segja af tilefninu að mér finnst þetta mjög spennandi tillaga og ég held að það yrði um margt til bóta að hafa aðgengi að þessum gögnum til þess einmitt að byggja ákvarðanatöku á og leggja mat á og eins líka úrvinnslu. Það yrði til allra bóta.

Mig langar hins vegar að gamni, ef maður leyfir sér að hugsa aðeins áfram, að spyrja hv. þingmann. Þessi umræða, þ.e. um það hvar störfin eru staðsett og þetta sem við þekkjum með störf án staðsetningar og störf með staðsetningu og allt þetta, sem verður oft í samhengi að einhvers konar pólaríseringu í umræðu á milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar — sem ég held að ég og hv. þingmaður deilum að við höfum ekki mikinn áhuga á, akkúrat þessari pólaríseringu, hún hjálpar engum — hefur oft á tíðum snúist um það að fjöldi starfanna, sér í lagi í ákveðnum sveitarfélögum, snúist í rauninni um getu sveitarfélaganna til þess að innheimta útsvar. Þau eru nefnilega mýmörg dæmin um tímabundin störf eða störf sem sannarlega eru bundin ákveðinni starfsstöð stofnunar sem hugsanlega er með höfuðstöðvar einhvers staðar annars staðar en akkúrat í hlutaðeigandi sveitarfélagi. Þetta er spurningin: Sæi hv. þingmaður flöt á því í framhaldinu að það yrði einhvers konar sveigjanleiki á skráningu viðkomandi, þó svo að útsvarið rynni að hluta til hlutaðeigandi sveitarfélags þar sem starfið sannarlega er unnið, í framhaldi af því að gögnin liggja fyrir?