154. löggjafarþing — 35. fundur,  22. nóv. 2023.

dreifing starfa.

453. mál
[17:34]
Horfa

Flm. (Hanna Katrín Friðriksson) (V) (andsvar):

Frú forseti. Aftur þakka ég andsvarið. Mér þykir einsýnt að þegar búið yrði í kjölfarið á samþykkt og síðan nánari vinnslu þessa máls að safna slíkum upplýsingum saman yrði þetta skoðað, að uppbygging á innviðum verði m.a. byggð á þessum þáttum. Það hlýtur að liggja í hlutarins eðli. Það er hægt að nefna að þessar stofnanir sem taldar eru upp hér byggja sínar áætlanir og jafnvel ákvarðanatöku á einhvers konar mati á akkúrat þessum málum en af því að þetta er ekki unnið á samræmdan hátt þá er það oft og tíðum, eins og ég kom inn á í ræðu minni og tiltekið er í greinargerð, einhver aðferðafræði sem mögulega getur síðan skarast við þá aðferðafræði sem önnur stofnun vinnur eftir og svipuð verkefni er að vinna. Þarna eru kannski einhverjar tvær stofnanir að vinna að sama verkefni, alla vega svipuð verkefni í stóru myndinni, en byggja ekki á nákvæmlega sömu upplýsingum. Þannig að allar ákvarðanir, hvort sem um er að ræða innviðaáætlanir eða annað, það er hægt að nefna raunverulega hvað sem er þegar kemur að því að byggja upp þetta samfélag, hljóta fyrst og fremst að þurfa að byggja á réttum upplýsingum í rauntíma og það er það sem við erum að miða að með þessu máli.