154. löggjafarþing — 35. fundur,  22. nóv. 2023.

sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki.

378. mál
[18:18]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég var meðflutningsmaður á þessu máli áður en því var breytt um miðjan dag í gær. Ég fékk tölvupóst rétt um ellefuleytið í gærmorgun þar sem ég var spurður hvort ég vildi vera með á frumvarpinu eins og því hafði verið breytt á þeim tíma og átti að svara fyrir lok þingfundar í gær. Það er tiltölulega stuttur tími til að bregðast við svona mikilli breytingu. (IngS: Það þarf bara eina mínútu.) Það þarf ekki bara eina mínútu því þessi breyting hefur þó nokkuð mikil áhrif. Eins og hv. þingmaður sagði sjálf í ræðunni hérna þá hafa bankarnir alls ekkert hlaupist frá því í rauninni að leggja svona álögur beint út í verðið til neytenda þannig að þessi hækkun fer einfaldlega bara beint í færslugjöld og ýmislegt svoleiðis og gróðinn verður nákvæmlega sá sami. Það er mun sniðugri hugmynd að ná gróðanum út hinum megin, t.d. með hærri fjármagnstekjuskatti eða ýmsum öðrum aðferðum. Þegar bankinn ætlar að borga sér út arðinn, þá tekurðu peningana. Útskýringarnar sem ég fékk þegar ég spurði: Af hverju er verið að tvöfalda skattprósentuna þarna? — þá fékk ég fyrst enga útskýringu. Það var ekki fyrr en síðdegis þann dag, þegar aðstoðarmaður Flokks fólksins gekk á mig til þess að spyrja hvort ég vildi vera með á breyttu máli og ég reyndi að fá útskýringar á því af hverju væri verið að hækka prósentuna, að mér var sagt að ástæðan hefði verið sú að fá 30 milljarða. Mér finnst það einfaldlega ekki góð ástæða, ekki nægilega góð ástæða til að vera með á frumvarpinu út af því. Ég var með á frumvarpinu út af allt öðrum ástæðum. Mér finnst mjög ankannalegt að Flokkur fólksins sendi út sérstaklega fréttatilkynningu til að tilkynna það að ég hafi ákveðið að taka mig af málinu. Mér finnst það mjög fáránlegt.

Ég get svarað fyrir mig sjálfur. Flokkur fólksins þarf ekkert að útskýra fyrir öðrum af hverju ég ákveð að taka mig af málum sem Flokkur fólksins er með og setur hér í gegn með einhverjum breytingum á örstuttri stundu.