innleiðing lýðheilsumats í íslenska löggjöf.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir þingsályktunartillögu um innleiðingu lýðheilsumats í íslenska löggjöf. Flutningsmenn þingsályktunartillögunnar eru, ásamt þeim sem hér stendur, hv. þingmenn Þórarinn Ingi Pétursson, Ingibjörg Isaksen, Líneik Anna Sævarsdóttir, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Gísli Rafn Ólafsson, Ásmundur Friðriksson, Jakob Frímann Magnússon, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Elva Dögg Sigurðardóttir. Þingsályktunartillagan var lögð fram á síðasta löggjafarþingi en hlaut ekki brautargengi. Þingsályktunartillaga þessi miðar að því að fela heilbrigðisráðherra að klára vinnu eða festa í sessi lýðheilsumat hér á landi ásamt því að skipaður verði sérfræðihópur um þátttöku fagráðuneyta, fræðasamfélags og embættis landlæknis og leggi til leiðir sem tryggi rýni allra stjórnarfrumvarpa sem lögð eru fyrir Alþingi út frá áhrifum þeirra á heilsu þjóðarinnar. Að vinnu lokinni skal hópurinn skila stöðuskýrslu.
Virðulegi forseti. Lýðheilsa er þverfagleg enda tengjast nær allir helstu málaflokkar í daglegu lífi fólks heilsufarslegri útkomu þess. Flutningsmenn þingsályktunartillögunnar telja nauðsynlegt að lýðheilsumat verði fest í sessi hér á landi og gert að föstum hluta stjórnsýslunnar. Slíkt lýðheilsumat er einföld en þó áhrifarík aðferð til að leggja mat á bein og óbein áhrif ákvarðana og lagasetningar af hálfu stjórnvalda í þágu lýðheilsu samfélagsins. Með því getur löggjafarvaldið tekið ákvarðanir með aukinni þekkingu á mögulegum áhrifum löggjafar á lýðheilsu fólks.
Á síðustu áratugum hafa lífslíkur aukist verulega hér á landi og aldurssamsetning þjóðarinnar hefur tekið breytingum í kjölfarið. Þannig gerir mannfjöldaspá Hagstofunnar ráð fyrir því að 65 ára og eldri verði 20% mannfjöldans árið 2037 og yfir 25% árið 2064. Þetta þýðir að sífellt færri verða á vinnufærum aldri á bak við hverja 65 ára og eldri, byrði langvinnra sjúkdóma aukast ásamt því að ýmsar áskoranir munu herja á samfélagið m.a. vegna loftslagsbreytinga. Ef ekki er brugðist við þessari stöðu með markvissum hætti er ljóst að kostnaður og þjónustuþörf mun aukast umtalsvert innan heilbrigðiskerfisins sem og öðrum þáttum stjórnsýslunnar.
Heilsuleysi hefur neikvæð áhrif á samfélagið í heild. Því fylgir kostnaður og þörf á frekari mannauði og þjónustu, eins og hér hefur komið fram. Því telja flutningsmenn mikilvægt að lýðheilsumat verði innleitt í íslenska löggjöf sem fyrst svo hægt sé að bregðast við framtíðaráskorunum sem samfélagið stendur frammi fyrir. Heilsu má greina niður í líkamlega, andlega og félagslega vellíðan. Einn megintilgangur stjórnvalda er að tryggja velsæld landsmanna, m.a. út frá framangreindum þáttum. Stjórnvöld vinna að því markmiði með öllum þeim kerfum sem einkenna velferðarríki. Skipta má áhrifum á heilsu niður í fimm meginþætti og greinast þeir frá víðum áhrifum niður í sértæk áhrif. Fyrst má nefna áhrif löggjafar af hálfu stjórnvalda, áhrif samfélagsins, áhrif stofnana, áhrif ýmissa hópa í samfélaginu og síðast en ekki síst persónulega þætti sem telja má til sértækra áhrifa. Ef horft er til arðsemissjónarmiða og sannreyndra fyrirbyggjandi aðgerða, skilar löggjöf mestum heilsufarslegum ábata fyrir heildina. Því er talið mikilvægt að stjórnvöld meti áhrif löggjafar út frá lýðheilsusjónarmiðum á sama hátt og mat er lagt á löggjöf út frá til að mynda jafnréttissjónarmiðum, umhverfisáhrifum, kostnaði og fleiri þáttum.
Í þessu samhengi er sérstaklega vert að nefna umhverfismat en því ferli hefur verið settur skýr rammi með lögum. Tvær mismunandi leiðir eru farnar varðandi mat á áhrifum löggjafar sem nefndar eru hér að framan. Varðandi jafnréttissjónarmið hefur ríkisstjórnin tekið þá ákvörðun að öll stjórnarfrumvörp skuli metin út frá áhrifum þeirra á jafnrétti kynjanna. Hins vegar liggur fyrir viðamikill lagarammi er snýr að umhverfismati til að mynda og ljóst að löggjafinn hefur talið mikilvægt að tryggja skýrt ferli varðandi þá greiningu, m.a. með þar til bærri stofnun, Umhverfisstofnun. Góð lýðheilsa er með því mikilvægasta sem samfélagið getur búið að. Því telja flutningsmenn þingsályktunartillögunnar það lykilatriði að stjórnvaldsaðgerðir og löggjöf af hálfu stjórnvalda verði metin með lýðheilsu í huga.
Í þingsályktunartillögu þessari er ekki lagt til hvernig ákjósanlegast sé að tryggja lýðheilsumat stjórnvalda. Hins vegar höfum við löggjöf í öðrum ríkjum sem hægt er að hafa til fyrirmyndar. Nærtækast er að horfa til Finnlands varðandi löggjöf af þessu tagi og framkvæmd hennar, en þar eru lagafrumvörp sérstaklega metin út frá áhrifum þeirra á lýðheilsu þjóðarinnar. Í lýðheilsustefnu til 2030 kemur fram að stjórnvöldum beri að hafa lýðheilsu að leiðarljósi við alla áætlanagerð og stefnumótun í heilbrigðismálum, félagsmálum, menntamálum, skipulags- og samgöngumálum, umhverfismálum og öllum þeim þáttum er tengjast nýsköpun og vísindarannsóknum og skatta- og efnahagsmálum. Því þurfi löggjöf að vera skýr og kveða afdráttarlaust á um hlutverk heilbrigðisstofnana, sveitarfélaga og annarra sem sinna lýðheilsustarfi. Þá segir að markmið lýðheilsustarfs þurfi að vera öllum ljós og upplýsingar um árangur þess aðgengilegar almenningi. Tilgangurinn er að skýra hlutverk og vinna að bættri þróun og samhæfingu í lýðheilsustarfi. Grundvöllur þess er fyrst og fremst aukið upplýsingagildi sem aftur skilar sér í betri ákvarðanatöku stjórnvalda. Nauðsynlegt er að tryggja kjörnum fulltrúum og almenningi bestu mögulegu upplýsingar um áhrif ákvarðana og löggjafar af hálfu stjórnvalda hverju sinni. Slíkt mat verður að vera framkvæmt á skilvirkan, skýran og upplýsandi máta, m.a. með notkun rannsókna og af til þess bærum aðilum. Framkvæmd lýðheilsumats er byggð á sannreyndum aðferðum og liggur til grundvallar fjöldi fræðigreina og leiða til að tryggja vandaða úttekt. Embætti landlæknis býr nú þegar yfir mikilli þekkingu á sviði lýðheilsu og forvarna og því einsýnt að stofnunin komi að útfærslu á lýðheilsumati er snýr að löggjöf hér á landi.
Virðulegi forseti. Lengi hafa ríki verið hvött til að innleiða lýðheilsumat í löggjöf í sínu landi. Hér á landi hefur embætti landlæknis kallað eftir slíkri innleiðingu. Hefur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin ásamt Sameinuðu þjóðunum gert slíkt hið sama. Ef marka má umræðu og aðgerðir stjórnvalda á undanförnum árum má ætla að breið samstaða sé um að Ísland taki sér Finnland til fyrirmyndar og innleiði lýðheilsumat. Hæstv. heilbrigðisráðherra Willum Þór Þórsson hefur lagt mikla áherslu á málaflokkinn og helgaði heilbrigðisþing í fyrra lýðheilsu, heilsueflingu, forvörnum og heilsulæsi. Í drögum að aðgerðaáætlun um lýðheilsustefnu sem kynnt var hér á Alþingi var innleiðing á lýðheilsumati ein af aðaláherslum.
Heilsa okkar er það dýrmætasta sem við eigum. Í tengslum við þróun á velsældarmælikvörðum var gerð könnun meðal landsmanna á því hvaða þættir það væru sem fólki þættu mikilvægastir í lífinu og kom þar fram að heilsan er þar langmikilvægust. Tillaga þessi er í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar en í sáttmálanum er kveðið á um aukna áherslu á lýðheilsu, forvarnir og geðheilbrigðismál. Með þingsályktunartillögu þessari er leitast við að tryggja faglega gerlega útfærslu og lýðheilsumat hér á landi sem þátt í vegferð okkar í átt að betri heilsu og vellíðan landsmanna og komandi kynslóða. Eins og ég hef nefnt í ræðu minni, virðulegi forseti, þá náði tillagan ekki fram að ganga á síðasta þingi en málið gekk til nefndar og bárust um það umsagnir frá embætti landlæknis, Félagi lýðheilsufræðinga, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Kópavogsbæ, Landssamtökunum Þroskahjálp, Reykjanesbæ, Reykjavíkurborg, Sveitarfélaginu Skagafirði og Öryrkjabandalagi Íslands. Skemmst er frá því að segja að heilt yfir voru allar þessar umsagnir um frumvarpið mjög jákvæðar, sem sýnir mikilvægi þess að tekið verði upp lýðheilsumat hér á landi. Vert er að nefna sérstaklega að Öryrkjabandalag Íslands tók heils hugar undir að hér yrði lýðheilsumat fest í sessi en nefndi mikilvægi þess að tekið væri mið af samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks við gerð lýðheilsumats.
Virðulegi forseti. Ég hef reifað hér helstu þætti tillögunnar og ég vonast til þess að hún nái fram að ganga. Ég vænti þess að velferðarnefnd Alþingis fari vel yfir hana og kalli þá eftir frekari umsögnum sé þess þörf og á endanum geti þingheimur sameinast um að tryggja lýðheilsumat í íslenska löggjöf. Að hér sé komin fram tillaga sem yrði fyrsti upptakturinn að slíku mati. Ég efast ekki um að betri og öflugri upplýsingar um áhrif löggjafar hér á heilsu þjóðarinnar verði okkur öllum til góða, ekki síst þeim sem landið munu erfa og sýni framsýni og dug okkar Íslendinga til að tryggja heilbrigt líferni og heilsusamlegt líf hér á landi til lengri tíma.