154. löggjafarþing — 35. fundur,  22. nóv. 2023.

innleiðing lýðheilsumats í íslenska löggjöf.

408. mál
[19:33]
Horfa

Ragna Sigurðardóttir (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Jóhanni Friðriki Friðrikssyni fyrir framlagða tillögu til þingsályktunar. Málið sem hér um ræðir, um innleiðingu lýðheilsumats í íslenska löggjöf, er gríðarlega mikilvægt. Ég get tekið undir bæði tillöguna sjálfa og það sem kemur fram í greinargerð enda eru aðgerðir stjórnvalda og löggjafarvaldsins oft og tíðum mikilvægustu aðgerðirnar þegar kemur að lýðheilsu, til að mynda varðandi neyslu á áfengi og afleiðingar þeirrar neyslu á þjóðfélagið, hvort sem það er tíðni ofbeldis, slysa eða áhrif á heilsu, svo sem langvinnir sjúkdómar eða sjúkdómar til skemmri tíma. Einnig kemur þetta við sögu þegar kemur að lýðheilsu hvað varðar lífsstílstengda sjúkdóma eins og þeir kallast; sykursýki, ofþyngd og offitu, kransæðasjúkdóma o.s.frv. Ég vil því fagna þessari þingsályktunartillögu en jafnframt spyrja hv. þm. Jóhann Friðrik Friðriksson, flutningsmann tillögunnar: Hvers vegna hefur þetta ekki náð fram að ganga fyrr?