154. löggjafarþing — 35. fundur,  22. nóv. 2023.

innleiðing lýðheilsumats í íslenska löggjöf.

408. mál
[19:35]
Horfa

Flm. (Jóhann Friðrik Friðriksson) (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka þingmanninum innilega fyrir andsvarið og mjög góða spurningu. Þegar ég rek málið aftur í tímann þá virðist það vera svo að bæði heilbrigðisráðherrar og ýmsir þingmenn hafi þrýst á um að lýðheilsumat verði tekið upp hér á landi. Ég held að ástæðuna megi kannski rekja til þess að upplýsingin um mikilvægi lýðheilsu almennt hafi verið til í fræðasamfélaginu, á meðal félagasamtaka, meðal ákveðinna stofnana, en á undanförnum árum hefur hún kannski orðið almennari. Og eins og er með ýmislegt sem við erum að reyna að ná í gegn á hinu háa Alþingi þá tekur þetta allt tíma og þarf að þroskast og um þetta þarf að verða breið sátt, annars myndi lýðheilsumat ekki gagnast. Í þingsályktunartillögunni nefni ég þess vegna ákveðna hluti sem á einhverjum tímapunkti þóttu einmitt ekki sjálfsagðir. Nú erum við að gera mat t.d. varðandi umhverfisáhrif sem okkur hér á Alþingi finnst vera hið eðlilegasta mál og samfélaginu öllu. Það þarf eitthvað mjög sértækt að koma til svo að farið sé fram hjá því ferli. Þess vegna fagna ég spurningunni. Ég held að við séum á góðri leið. Ég held að við getum horft til þess að upplýsingin úti í samfélaginu komi til með að styðja þingsályktunartillögu sem þessa en við þurfum líka að horfa til þess að við eigum öflugt fólk til að geta sinnt lýðheilsumatinu sjálfu. Í mínum huga þarf að efla embætti landlæknis til þess og það þarf margt að koma til, en ég held að við séum á réttri leið. Ég fagna spurningu hv. þingmanns og inntaki hennar.