154. löggjafarþing — 35. fundur,  22. nóv. 2023.

innleiðing lýðheilsumats í íslenska löggjöf.

408. mál
[19:37]
Horfa

Ragna Sigurðardóttir (Sf) (andsvar):

Ég þakka hv. þm. Jóhanni Friðriki Friðrikssyni fyrir greinargott svar. Mér skilst þá að ástæðan sé sú að almennt sé að verða meiri vitneskja úti í samfélaginu um mikilvægi lýðheilsu, þótt vissulega hafi verið vitneskja um þetta í fræðasamfélaginu og, að því að ég tel, meðal þingmanna. En mér þykir þá nærtækast að spyrja í þessu seinna andsvari: Hver er afstaða flutningsmanna eða hv. þm. Jóhanns Friðriks Friðrikssonar gagnvart þeim frumvörpum og þeim tillögum sem hafa komið á undanförnum árum frá stjórnarliðum, til að mynda um breytingar á áfengislögum sem auka neyslu áfengis, hvort sem það er með afnámi á einokun á sölu áfengis eða með netsölu áfengis, og til fyrri tillagna frá þeim flokkum sem nú sitja í ríkisstjórn, eins og t.d. sykurskatts? Telur hv. þingmaður að samstarfsaðilar hans í ríkisstjórn muni fallast á lýðheilsurök í þessum málum, nái þessi þingsályktunartillaga fram að ganga?