innleiðing lýðheilsumats í íslenska löggjöf.
Frú forseti. Ég þakka fyrir alveg frábærar spurningar. Ástæðan fyrir því að ég tel svo mikilvægt að ná lýðheilsumatinu í gegn er fyrst og fremst til þess að við höfum einhvern mælikvarða á þá löggjöf sem hér er að koma inn í þingið. Hún er skoðuð á mörgum vígstöðvum, ef svo má segja, út frá hinum ýmsu sjónarmiðum. Það er eitthvað sem við erum búin að ákveða að gera. Tilgangurinn er sá að einmitt þingmenn, og ekki síst stjórnsýslan okkar, hafi betri upplýsingar.
Það eru skiptar skoðanir um ákveðna þætti í forvörnum og hafa alltaf verið. Áfengislöggjöfin okkar byggist t.d. fyrst og fremst á forvarnagrunni og ég ætti mjög erfitt með að vera hér á grænu ef fólk ætlaði að fara að kollvarpa henni. Sykurskatturinn sem hér kom fram fyrir nokkrum árum síðan var studdur til að mynda af Félagi lýðheilsufræðinga og var að mínu áliti tekinn af áður en árangur af honum var raunverulega mælanlegur. Það þótti mér miður. Til þess að vera samkvæmur sjálfum mér þá hef ég ekkert á móti því að skoða neyslumynstur eða breytingar á því hvernig við högum ákveðnum þáttum til að mynda varðandi efni eins og áfengi, sem er í mínum huga ekki hefðbundin söluvara. Mér finnst ekkert að því að skoða það og taka upplýsta ákvörðun um það í hvaða átt við þurfum að fara. En þá er miklu betra að vera með lýðheilsumatið í lögunum til að það sé hægt að taka betur upplýstar ákvarðanir um hvaða áhrif það myndi hafa á lýðheilsu þjóðarinnar. Við gætum farið þá leið ef fólk hefur áhuga á því, fólk í þessum ágæta þingsal, þingmennirnir okkar, að skoða mótvægisaðgerðir, ef það á að fara þá leið. En þá þarf lýðheilsumatið að liggja fyrir til þess að sé hægt að koma til móts við óæskileg áhrif af slíkri ákvörðunartöku.