154. löggjafarþing — 35. fundur,  22. nóv. 2023.

innleiðing lýðheilsumats í íslenska löggjöf.

408. mál
[19:43]
Horfa

Flm. (Jóhann Friðrik Friðriksson) (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka þingmanninum andsvarið. Ástæðan fyrir því að ég bendi á mismunandi dæmi um rýni stjórnarfrumvarpa og löggjafar á Íslandi er ekki kannski endilega til að segja að öll sú rýni sé nákvæmlega eins og lýðheilsumat heldur bara gott dæmi um það hvernig við hér á Alþingi og ríkisstjórn höfum ákveðið að setja slíkar kvaðir á áður en við tökum slík frumvörp til umfjöllunar. Það er fyrst og fremst til upplýsinga og að mínu áliti alltaf betra að fá slíka rýni heldur en ekki. Þingmaðurinn nefndi einnig hvort það væri ekki einsýnt að embætti landlæknis myndi bara sjá um framkvæmd lýðheilsumats. Jú, það væri algerlega til bóta ef sú leið yrði valin. Ég held að þetta þurfi að vera á breiðari grundvelli en bara að fela embætti landlæknis þessa rýni vegna þess að það eru fleiri leiðir og ég bendi á Finnland í þessu samhengi. Þar er komin ágætisreynsla á þetta og þeir stofnuðu, ef ég fer rétt með, virðulegi forseti, sérstakan hóp til að sjá um þetta. Þarna erum við náttúrlega líka að tala um tengsl við löggjafarvaldið og það skiptir gríðarlega miklu máli að það sé mjög mikið traust á mati sem þessu. Annars verðum við auðvitað, og kannski eðli málsins samkvæmt, líka alltaf að velta fyrir okkur vægi ákveðinna þátta innan slíks mats, það er mjög líklegt, svona ef ég geri mér í hugarlund líklega umræðu þegar lýðheilsumat liggur fyrir. Það er eðlilegt og nauðsynlegt líka að taka slíka umræðu um hvers konar vægi og hvers konar þætti menn vega og meta í slíkri úttekt.