154. löggjafarþing — 35. fundur,  22. nóv. 2023.

innleiðing lýðheilsumats í íslenska löggjöf.

408. mál
[19:46]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Vissulega er áhugavert hvernig Finnar gera þetta, að þeir séu með sérstakan hóp í þessu starfi. Ef ég bara að hugsa þetta aðeins nánar þá hugsa ég að jafnvel væri best að þessi rýni færi fram á fyrri stigum frumvarpsgerðar, jafnvel bara í samráðsgátt stjórnvalda. Það sé ekki verið að gera það á seinni stigum heldur sé það gert í ró og næði þegar frumvarpið er í samráðsgátt og þá liggi lýðheilsumatið bara fyrir í frumvarpinu þegar við fáum það til afgreiðslu. Mér finnst þetta mjög áhugavert og það er alveg klárt mál í mínum huga að við þurfum sem samfélag að setja lýðheilsu á dagskrá í íslensku samfélagi. Við getum ekki verið ein feitasta þjóð Evrópu eða innan OECD með þeim heilsukvillum sem því fylgir og kostnaði. Ég á nú sæti með hv. þingmanni í fjárlaganefnd og við áttum fund í síðustu viku með heilbrigðisráðuneytinu, m.a. út af kostnaði við offitulið og hann er ekki lítill, sá kostnaður. Ég held að þetta sé mjög gott mál og ég vona að það nái fram að ganga og eins og kemur fram í greinargerðinni er þetta áhugamál líka hjá hæstv. heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórssyni.

Ég held hins vegar að lýðheilsa á Íslandi sé í ákveðinni hættu núna þessa dagana. Þá nefni ég m.a. ólöglega netsölu á áfengi sem virðist ekkert vera gert í af hálfu stjórnvalda og lögregluyfirvalda. Við erum með einkaleyfi frá 1922 og netsala á áfengi er klárlega smásala. Við ættum líka að íhuga það hvort við ættum að taka upp sykurskatt, það er gríðarlega mikilvægt. Ég vona að þetta mál nái fram að ganga og verði hvatning til stjórnvalda til að taka upp lýðheilsumat og setja það líka á dagskrá í umræðunni. Við verðum að fara að gera það miðað við hvernig staðan er en ég tel að staðan á lýðheilsu þjóðarinnar sé ekki góð, ekki á nokkurn einasta hátt. Það væri gott að heyra álit hv. þingmanns á því og hvaða nauðsyn hann telji á því að taka upp þetta lýðheilsumat, hvort hann sé sammála mér um að það sé kominn tími til að setja lýðheilsuumræðuna á dagskrá í íslensku samfélagi.